Fundur haldinn í ráðhúsi Sameinaðs sveitarfélags Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar, 19. júní 2024 og hófst hann kl. 16:15
Nefndarmenn
- Friðbjörg Matthíasdóttir (FM) aðalmaður
- Gunnþórunn Bender (GB) aðalmaður
- Jenný Lára Magnadóttir (JLM) aðalmaður
- Jóhann Örn Hreiðarsson (JÖH) aðalmaður
- Maggý Hjördís Keransdóttir (MHK) aðalmaður
- Páll Vilhjálmsson (PV) aðalmaður
- Tryggvi Baldur Bjarnason (TBB) aðalmaður
Starfsmenn
- Gerður Björk Sveinsdóttir (GBS) starfandi bæjarstjóri
Fundargerð ritaði
- Gerður Björk Sveinsdóttir starfandi bæjarstjóri
Hljóðupptaka
Almenn erindi
1. Nafn á sameinað sveitarfélag
Lagðar fyrir niðurstöður könnunar meðal íbúa um nafn á Sameinað sveitarfélag. Á 1. fundi bæjarstjórnar var ákveðið að unnin yrði skoðanankönnun meðal íbúa um nafn á nýtt sveitarfélag þar sem kosið yrði á milli nafnanna:
Barðsbyggð
Kópsbyggð
Látrabyggð
Suðurfjarðabyggð
Tálknabyggð
Vesturbyggð
Könnunin fór fram í gegnum vefinn betraisland.is
347 manns greiddu atkvæði í könnuninni og eru niðurstöður þannig að 90,5% völdu nafnið Vesturbyggð. Það nafn sem fékk næstflest atkvæði var nafnið Suðurfjarðabyggð sem fékk 5,5% atkvæða.
Lagt er til að nafn Sameinaðs sveitarfélags Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar verði Vesturbyggð.
Til máls tók: Forseti
Samþykkt með sex atkvæðum, Jóhann Örn Hreiðarsson sat hjá við atkvæðagreiðslu.
Málsnúmer 2405085 2
2. Ráðning bæjarstjóra
Gerður Björk Sveinsdóttir starfandi bæjarstjóri vék af fundi undir liðnum.
Lagt er til að Gerður Björk Sveinsdóttir starfandi bæjarstjóri Sameinaðs sveitarfélags Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar verðin ráðin í embætti bæjarstjóra Sameinaðs sveitarfélags. Formanni bæjarráðs verði falið að ganga frá ráðningasamningi sem lagður verði fyrir bæjarráð til staðfestingar, í samræmi við heimild til fullnaðarafgreiðslu skv. 32. gr. samþykktar um stjórn Sameinaðs sveitarfélags Tálknafjarðarhrepps og Vesturbygðar.
Til máls tóku: Forseti og PV.
Samþykkt samhljóða.
Gerður Björk Sveinsdóttir kom aftur inná fundinn.
Málsnúmer 2406053 2
3. Siðareglur kjörinna fulltrúa
Lagðar fyrir til samþykktar siðareglur kjörinna fulltrúa Sameinaðs sveitarfélags Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar.
Til máls tók: Forseti
Samþykkt samhljóða
Málsnúmer 2406051 6
4. Erindisbréf
Lögð fram til samþykktar erindisbréf fyrir bæjarráð, fjölskylduráð, skipulags- og framkvæmdaráð, loftlags- og umhverfisráð og heimastjórnir.
Til máls tók: Forseti
Erindisbréfin eru samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 2406027 7
5. Gjaldskrár
Lögð fram tillaga um að gjaldskrár Vesturbyggðar og Tálknafjarðarhrepps haldi gildi sínu út fjárhagsárið 2024. Gjaldskrárnar voru samræmdar að mestu leyti við vinnu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2024. Ef vafi leikur á um hvor gjaldskráin eigi að gilda þá gildir gjaldskrá Vesturbyggðar.
Til máls tók: Forseti
Tillagan er samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 2406070 3
6. Samþykktir og reglur Sameinaðs sveitarfélags Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar
Lagt fram yfirlit yfir samþykktir og reglur sem gilda munu í Sameinuðu sveitarfélagsi Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar þar til ákvörðun hefur verið tekin um annað.
Til máls tók: Forseti
Samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 2406055
7. Sumarleyfi bæjarstjórnar
Lögð fram tillaga um sumarleyfi bæjarstjórnar 2024. Með vísan til 3. mgr. 8. gr. og 2. mgr. 32. gr. samþykktar um stjórn Sameinaðs sveitarfélags Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar nr. 410/2024, er lagt til að sumarleyfi bæjarstjórnar verði frá 20. júní til og með 20. ágúst nk. og á þeim tíma hafi bæjarráð heimild til fullnaðarafgreiðslu skv. 32. gr. samþykktar um stjórn Sameinaðs sveitarfélags Tálknafjarðarhrepps og Vesturbygðar. Næsti fundar bæjarstjórnar er 21. ágúst nk.
Til máls tók: Forseti
Samþykkt samhljóða
Málsnúmer 2406052
8. Stjórnskipan - skipan í ráð og nefndir
Fyrir liggur tillaga um að bæjarráði verði falin fullnaðarafgreiðsla skv. 32. gr. samþykkta um stjórn Vesturbyggðar nr. 410/2024 til að skipa í þau ráð og nefndir sem ekki hefur verið skipað í af bæjarstjórn.
Til máls tók: Forseti
Samþykkt samhljóða
Málsnúmer 2405083 3
Fundargerð
9.
Bæjarráð - 1
Lögð fram til kynningar fundargerð 1. fundar bæjarráðs, fundurinn var haldinn 11. júní 2024. Fundargerðin er í 21 lið.
Til máls tók: Forseti
- 9.1. #2406032 – Blámi
- 9.2. #2405019 – Til samráðs -Breytingar á tilvísunum fyrir börn
- 9.3. #2405055 – Til samráðs -Breyting á lögum um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi til að starfa hér á landi
- 9.4. #2405080 – Mál nr. 1114 um frumvarp til laga um tekjustofna sveitarfélaga (gjaldfrjálsar skólamáltíðir)
- 9.5. #2306039 – Umsóknir Vesturbyggðar í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða 2023
- 9.6. #2405102 – Til samráðs - Hvítbók í málefnum innflytjenda
- 9.7. #2405103 – Til samráðs - reyting á reglugerð um þráðlausan fjarskiptabúnað
- 9.8. #2405106 – Hvatning til samveru fjölskyldunnar -bréf frá Saman hópnum
- 9.9. #2406046 – Til samráðs Drög að reglugerð um breytingu á skipulagsreglugerð, nr. 902013
- 9.10. #2405088 – Niðurstöður sýnatöku - Vatnsveita Patreksfirði 13.05.2024
- 9.11. #2405089 – Mál nr. 1036 umsögn um tillögu til þingsályktunar um ferðamálastefnu og aðgerðaráætlun til ársins 2030
- 9.12. #2406000 – Farsæld barna
- 9.13. #2405104 – Fundargerðir Breiðafjarðarnefndar 2024
- 9.14. #2406006 – Landskjörstjórn - ársskýrsla 2023
- 9.15. #2406013 – Sveitarstjórnarkosningar 2024
- 9.16. #2406027 – Erindisbréf
- 9.17. #2406014 – Innleiðing heimastjórna
- 9.18. #2406001 – Framkvæmdastjóri Vestfjarðastofu
- 9.19. #2406031 – Fastur fundartími bæjarráðs
- 9.20. #2406033 – Skilaskýrsla undirbúningsstjórnar til Sameinaðs sveitarfélags Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar
- 9.21. #2406036 – Framkvæmdir Landsnets, Mjólkárlína 2, 66 kV jarðstrengur
- 9.22. #2406034 – Hjúkrunarrými á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða Patreksfirði
- 9.23. #2405056 – Mál nr. 925 um umsagnar frumvarp til laga um lögræðislög (nauðungarvistanir, yfirlögráðendur o.fl.)
- 9.24. #2405052 – Fundargerð aðalfundar Landskerfi bókasafna hf 2024 og skýrsla stjórnar
Málsnúmer 2406002F
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:23
Bæjarstjórn Sameinaðs sveitarfélags Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar kom saman til 2. fundar miðvikudaginn 19. júní 2024 kl. 16:15 í Ráðhúsi Vesturbyggðar, Aðalstræti 75, Patreksfirði.
Gunnþórunn Bender forseti setti fundinn og kannaði hvort athugasemdir væru við fundarboðun. Svo var ekki.