Málsnúmer 2406027
11. júní 2024 – Bæjarráð
Lagt fram til kynningar drög að erindisbréfi bæjarráðs. Erindisbréf bæjarráðs ásamt erindisbréfum annara ráða og stjórna verða lögð fyrir á næsta fundi bæjarstjórnar til samþykktar.
19. júní 2024 – Bæjarstjórn
Lögð fram til samþykktar erindisbréf fyrir bæjarráð, fjölskylduráð, skipulags- og framkvæmdaráð, loftlags- og umhverfisráð og heimastjórnir.
Til máls tók: Forseti
Erindisbréfin eru samþykkt samhljóða.
20. júní 2024 – Umhverfis- og loftslagsráð
Erindisbréf umhverfis- og loftslagsnefndar, drög
Kynnt erindisbréf umhverfis- og loftslagsráðs og það rætt. Formaður kemur með ábendingu um efni bréfsins um að rétt sé að umhverfis- og loftslagsráð hafi líka aðkomu að umfjöllum um umhverfismat varðandi framkvæmdir í sveitarfélaginu og málefni sem við koma náttúruverndarlögum og framkvæmd þeirra.
Ábending formanns samþykkt samhljóða.
3. júlí 2024 – Heimastjórn Patreksfjarðar
Erindisbréf heimastjórnar Patreksfjarðar
Erindisbréfið lagt fram til kynningar.
4. júlí 2024 – Heimastjórn Tálknafjarðar
Erindisbréf heimastjórnar Tálknafjarðar.
Lagt fram til kynningar
11. júlí 2024 – Heimastjórn fyrrum Barðastrandarhrepps og Rauðasandshrepps
Erindisbréf heimastjórnar fyrrum Barðastrandar- og Rauðasandshrepps.
Lagt fram til kynningar