Fundur haldinn í Svörtuloftum, fundarsal í ráðhúsi Vesturbyggðar, 23. júlí 2024 og hófst hann kl. 14:00
Nefndarmenn
- Friðbjörg Matthíasdóttir (FM) aðalmaður
- Jenný Lára Magnadóttir (JLM) varaformaður
- Páll Vilhjálmsson (PV) formaður
Starfsmenn
- Gerður Björk Sveinsdóttir (GBS) bæjarstjóri
- Nanna Lilja Sveinbjörnsdóttir (NLS) sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði
- Nanna Lilja Sveinbjörnsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Almenn erindi
1. Hjúkrunarrými á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða Patreksfirði
Farið yfir stöðu mála vegna uppbyggingar hjúkrunarrýma við Heilbrigðisstofnun Vestfjarða á Patreksfirði.
Óskað hefur verið eftir upplýsingum frá ríkiseignum um hver staða verkefnisins er hjá þeim ásamt nýrri kostnaðar og tímaáætlun. Gert er ráð fyrir að næsti verkfundur verði haldinn í ágúst.
Málsnúmer 2406034 3
2. Styrkvegir 2024 umsóknir
Sviðsstjóri framkvæmda- og umhverfissviðs kom inná fundinn og fór yfir stöðu styrkvega í sveitarfélaginu.
Sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs sat fundinn undir liðnum.
Farið var yfir ferli við styrkumsóknir til Vegagerðarinnar vegna styrkvega í sveitarfélaginu og hvaða vegir falli þar undir.
Málsnúmer 2407038 2
3. Viðhaldsþörf í Tálknafirði
Lögð fyrir bókun frá 1. fundi heimastjórnar Tálknafjarðar þar sem bent er á ýmis viðhaldsverkefni sem brýnt er að fara í.
Sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs sat fundinn undir liðnum.
Unnið er að þeim viðhaldsverkefnum sem rúmast innan núverandi fjárhagsáætlunar, að öðru leiti er málinu vísað áfram til vinnslu fjárhagsáætlunargerðar 2025-2028.
Málsnúmer 2407010 2
4. Brú í Smælingjadal Tálknafirði - viðhaldsþörf
Lagður fram tölvupóstur frá Pálínu Kristínu Hermannsdóttur dags. 8. júlí sl. þar sem landeigendur lýsa yfir áhyggjum sínum af ástandi brúar í Smælingjadal í Tálknafirði.
Sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs sat fundinn undir liðnum.
Sviðstjórna umhverfis- og framkvæmdasviðs falið að sækja um styrkvegafé til Vegagerðarinnar þegar opnað verður fyrir umsóknir.
Málsnúmer 2407029
5. Tjaldsvæði á Bíldudal
Lagt fyrir erindi sem tekið var fyrir á 1. fundi heimastjórnar Arnarfjarðar sem haldinn var 10. júlí sl. Heimastjórn Arnarfjarðar leggur til að farið verði í deiliskipulagsvinnu fyrir nýtt tjaldsvæði á Bíldudal og það verði staðsett á túninu við Skrímslasetrið.
Sviðstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs sat fundinn undir liðnum.
Bæjarráð tekur undir bókun heimastjórnar og vísar því áfram til skipulags- og framkvæmdaráðs, gert er ráð fyrir fjármagni til vinnu við deiliskipulag fyrir nýtt tjaldsvæði á Bíldudal í fjárhagsáætlun 2024.
Málsnúmer 2407018 3
6. Bíldudalsskóli - húsnæði
Lagt fyrir erindi sem tekið var fyrir á 1. fundi heimastjórnar Arnarfjarðar sem haldinn var 10. Júlí sl. vegna byggingar skólahúsnæðis á Bíldudal. Heimastjórn lýsir fyrir áhyggjum af því að skólahúsnæðið sé of lítið og ekki sé búið að tímasetja áfanga tvö.
Sviðstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs sat fundinn undir liðnum.
Sviðsstjóri fór yfir það ferli sem átti sér stað við hönnun skólans. Gert er ráð fyrir 20% fjölgun barna innan þess rýmis sem gert er ráð fyrir. Búið er að bjóða verkið út og er áætlað að framkvæmdir hefjist í lok sumars 2024 og að húsnæðið verði tekið til notkunar í upphafi skólaárs 2025 - 2026.
Bæjarráð vísar umræðum um 2. áfanga til vinnu við fjárhagsáætlun 2025 - 2028.
Málsnúmer 2407024 3
7. Tálknafjarðarhöfn, viðhaldsþörf
Tillaga frá heimastjórn Tálknafjarðar vegna viðhalds og framkvæmda á Tálknafjarðarhöfn. Heimastjórn Tálknafjarðar bendir bæjarstjórn á að deiliskipulag hafnar á Tálknafirði liggur fyrir.
Heimastjórn Tálknafjarðar telur afar brýnt að meðfylgjandi erindi fari í verkmat og kostnaður verði reiknaður með það að markmiði að koma verkefninu inn í vinnu við Samgönguáætlun 2024-2038.
Hafnarstjóri sat fundinn undir liðinum.
Bæjarráð felur hafnarstjóra að skoða mögulegar úrbætur á aðstöðu við olíudælur og vinna ástandsmat á höfninni í Tálknafirði. Hafnarstjóra falið að vinna að umsókn í samgönguáætlun sem hægt verði að skila inn við næstu endurskoðun hennar.
Málsnúmer 2407005 2
Til kynningar
8. Fundargerð Aðalfundar FsVfj 2024
Fundargerð aðalfundar Félags skógarbænda á Vestfjörðum 2024 lögð fram til kynningar.
Málsnúmer 2407028
9. Sveitarstjórnarkosningar 2024
Lögð fram til kynningar skýrsla Landskjörstjórnar varðandi sveitarstjórnarkosningar 2024.
Málsnúmer 2406013 2
10. Fundargerðir Heilbrigðisnefndar Vestfjarðasvæðis 2024
Lögð fram til kynningar 148. fundargerð Heilbrigðisnefndar Vestfjarðasvæðis sem haldinn var 18. júlí sl. ásamt kæru Umhverfisstofnunar til ráðuneytis varðandi útgáfu á leyfi fyrir laxavinnslu.
Málsnúmer 2402045 3
Fundargerðir til kynningar
11. Umhverfis- og loftslagsráð - 1
Lögð fram til kynningar fundargerð 1. fundar umhverfis- og loftlagsráðs sem haldinn var 20. júní 2024. Fundargerðin er í 6 liðum.
- 11.1. #2406095 – Kosning varafomanns umhverfis- og loftslagsnefndar
- 11.2. #2406096 – Fastur fundartími umhverfis- og loftslagsnefndar
- 11.3. #2406027 – Erindisbréf
- 11.4. #2405096 – Svæðisáætlun um sorpmál
- 11.5. #2406089 – Samþykktir sameinaðs sveitarfélag Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar
- 11.6. #2406051 – Siðareglur kjörinna fulltrúa
Málsnúmer 2406005F
12. Skipulags- og framkvæmdaráð - 1
Lögð fram til kynningar fundargerð 1. fundar skipulags- og framkvæmdaráðs sem haldinn var 26. júní 2024. Fundargerðin er í 7 liðum.
Lögð fram til kynningar fundargerð 1. fundar skipulags- og framkvæmdaráðs sem haldinn var 26. júní 2024. Fundargerðin er í 7 liðum.
- 12.1. #2406142 – Kosning varaformanns og ritara, fundartimi o.fl. Skipulags- og framkvæmdaráð
- 12.2. #2406149 – Trúnaðaryfirlýsingar 2024-2026
- 12.3. #2406154 – Umsókn um leyfi fyrir auglýsingaskiltum - Patreksfjörður
- 12.4. #2406049 – Umsagnarbeiðni - Frístundabyggð í Dagverðardal í Ísafjarðarbæ nr. 0631-2023
- 12.5. #2406119 – Tillaga að lýsingu Svæðisskipulags Vestfjarða
- 12.6. #2403076 – Sólmyrkvi 12 ágúst 2026
- 12.7. #2406046 – Til samráðs Drög að reglugerð um breytingu á skipulagsreglugerð, nr. 902013
Málsnúmer 2406006F
13. Heimastjórn Patreksfjarðar - 1
Lögð fram til kynningar fundargerð 1. fundar heimastjórnar Patreksfjarðar sem haldinn var 3. júlí 2024. Fundargerðin er í 8 liðum.
- 13.1. #2406156 – Tímasetning funda heimastjórna
- 13.2. #2406154 – Umsókn um leyfi fyrir auglýsingaskiltum - Patreksfjörður
- 13.3. #2406027 – Erindisbréf
- 13.4. #2406089 – Samþykktir sameinaðs sveitarfélag Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar
- 13.5. #2406051 – Siðareglur kjörinna fulltrúa
- 13.6. #2406040 – Brunnar Patreksfirði Endurgerð götu
- 13.7. #2406040 – Brunnar Patreksfirði Endurgerð götu
- 13.8. #2406040 – Brunnar Patreksfirði Endurgerð götu
Málsnúmer 2406008F
14. Heimastjórn Tálknafjarðar - 1
Lögð fram til kynningar fundargerð 1. fundar heimastjórnar Tálknafjarðar sem haldinn var 4. júlí 2024. Fundargerðin er í 6 liðum.
- 14.1. #2407005 – Tálknafjarðarhöfn, viðhaldsþörf
- 14.2. #2407010 – Viðhaldsþörf í Tálknafirði
- 14.3. #2406156 – Tímasetning funda heimastjórna
- 14.4. #2406027 – Erindisbréf
- 14.5. #2406089 – Samþykktir sameinaðs sveitarfélag Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar
- 14.6. #2406051 – Siðareglur kjörinna fulltrúa
Málsnúmer 2406009F
15. Heimastjórn Arnarfjarðar - 1
Lögð fram til kynningar fundargerð 1. fundar heimastjórnar Arnarfjarðar sem haldinn var 10. júlí 2024. Fundargerðin er í 8 liðum.
- 15.1. #2407018 – Tjaldsvæði á Bíldudal
- 15.2. #2406156 – Tímasetning funda heimastjórna
- 15.3. #2406027 – Erindisbréf
- 15.4. #2406089 – Samþykktir Vesturbyggðar
- 15.5. #2406051 – Siðareglur kjörinna fulltrúa
- 15.6. #2406036 – Framkvæmdir Landsnets, Mjólkárlína 2, 66 kV jarðstrengur
- 15.7. #2406155 – Landamerki Litla-Eyri - Bíldudalur
- 15.8. #2407024 – Bíldudalsskóli - húsnæði
Málsnúmer 2407001F
16. Heimastjórn fyrrum Barðastrandarhrepps og Rauðasandshrepps - 1
Lögð fram til kynningar fundargerð 1. fundar heimastjórnar fyrrum Barðastrandarhrepps og Rauðasandshrepps sem haldinn var 11. júlí 2024. Fundargerðin er í 8 liðum.
- 16.1. #2406156 – Tímasetning funda heimastjórna
- 16.2. #2406027 – Erindisbréf
- 16.3. #2406089 – Samþykktir sameinaðs sveitarfélag Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar
- 16.4. #2406051 – Siðareglur kjörinna fulltrúa
- 16.5. #2306039 – Umsóknir Vesturbyggðar í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða 2023
- 16.6. #2406004 – Hitaveita Krossholti
- 16.7. #2406080 – Beiðni til sveitarstjórnar um smölun ágangsfjár
- 16.8. #2403076 – Sólmyrkvi 12 ágúst 2026
Málsnúmer 2407002F
17. Umhverfis- og loftslagsráð - 2
Lögð fram til kynningar fundargerð 2. fundar umhverfis- og loftlagsráðs sem haldinn var 15. júlí 2024. Fundargerðin er í 6 liðum.
- 17.1. #2405096 – Svæðisáætlun um sorpmál
- 17.2. #2406172 – Upplýsingar um stöðu mála varðandi umhverfiseftirlit og framtíð heilbrigðiseftirlits.
- 17.3. #2406111 – Til samráðs -Frumvarp til laga um loftslagsmál (ný heildarlög)
- 17.4. #2405096 – Svæðisáætlun um sorpmál
- 17.5. #2406104 – Til samráðs - Ný og uppfærð aðgerðaráætlun í loftlagsmálum
- 17.6. #2406054 – Fjárhagsáætlun 2025 - 2028
Málsnúmer 2407004F
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:00