Hoppa yfir valmynd

Bæjarráð #769

Fundur haldinn í Aðalstræti 63, Patreksfirði, 13. júní 2016 og hófst hann kl. 16:00

    Fundargerð ritaði
    • Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri

    Friðbjörg Matthíasdóttir var í síma.

    Almenn erindi

    1. Ráðning skólastjóra.

    Viðtöl tekin við tvo umsækjendur um stöðu skólastjóra Patreksskóla, Gústaf Gústafsson og Kristján Arnar Ingason.
    Alls sóttu 6 um starfið, tveir umsækjendur uppfylltu ekki skilyrði auglýsingar. Viðtöl voru tekin við 4 aðila af Attentus-mannauður og ráðgjöf. Niðurstaðan var að boða Gústaf og Kristján í viðtal hjá fræðsluráði og bæjarráði.

    Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn Vesturbyggðar að Gústaf Gústafsson verði ráðinn skólastjóri Patreksskóla.

    Bæjaráð leggur til við bæjarstjórn að Ásdís Snót Guðmundsdóttir verði ráðin skólastjóri Bíldudalsskóla. Ásdís Snót var eini umsækjandi um stöðuna.

      Málsnúmer 1606005 2

      Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


      2. Sýslumaðurinn á Vestfjörðum - umsagnarbeiðni, Hótel Breiðavík.

      Lagt fram bréf ásamt fylgiskjölum dags. 9. júní sl. frá Sýslumanninum á Vestfjörðum með beiðni um umsögn vegna umsóknar á endurnýjun rekstrarleyfis að reka gistingu samkvæmt gistiflokki V/veitingarstað í flokki II í Hótel Breiðavík, Breiðavík Vesturbyggð.
      Bæjarráð gerir ekki athugasemd við endurnýjun rekstrarleyfis að reka gistingu samkvæmt gistiflokki V/veitingarstað í flokki II í Hótel Breiðavík, Breiðavík Vesturbyggð.

        Málsnúmer 1606011 2

        Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


        3. Sýslumaðurinn á Vestfjörðum - umsagnarbeiðni, Aðalstræti 62 ehf.

        Lagt fram bréf ásamt fylgiskjölum dags. 8. júní sl. frá Sýslumanninum á Vestfjörðum með beiðni um umsögn vegna umsóknar um nýtt rekstrarleyfi að reka gistingu samkvæmt gistiflokki IV í Hotel West, Aðalstræti 62 Patreksfirði.
        Bæjarráð gerir ekki athugasemd við veitingu nýs rekstrarleyfis að reka gistingu samkvæmt gistiflokki IV í Hotel West, Aðalstræti 62 Patreksfirði.

          Málsnúmer 1606010 2

          Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


          4. Sýslumaðurinn á Vestfjörðum - umsagnarbeiðni, Stúkuhúsið

          Lagt fram bréf ásamt fylgiskjölum dags. 8. júní sl. frá Sýslumanninum á Vestfjörðum með beiðni um umsögn vegna umsóknar um endurnýjun rekstrarleyfis að reka veitingarstað í flokki II í Stúkuhúsinu, Aðalstræti 50 Patreksfirði.
          Bæjarráð gerir ekki athugasemd við endurnýjun rekstrarleyfis að reka veitingarstað í flokki II í Stúkuhúsinu, Aðalstræti 50 Patreksfirði.

            Málsnúmer 1606009 2

            Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


            5. Aðstæður á leikskólanum Arakletti

            Lagt fram bréf dags. 14. apríl sl. frá Ásþóri Ragnarssyni, sálfræðingi hjá Sérfræðiþjónustu leik- og grunnskóla varðandi starfsmannahald á leikskólanum Arakletti varðandi sérkennslu.
            Bæjarráð óskar eftir því að leikskólastjóri mæti á næsta fund bæjarráðs.

              Málsnúmer 1605035 2

              Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


              Til kynningar

              6. Heilbrigðiseftirlit Vestfjarða - fundargerð 107. fundur stjórnar 08.06.16.

              Lögð fram fundargerð 107.fundar Heilbrigðisnefndar Vestfjarðasvæðis frá 8. maí sl.
              Lagt fram til kynningar.

                Málsnúmer 1606008

                Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


                Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:00