Málsnúmer 1605035
5. júlí 2016 – Bæjarráð
Mætt til viðræðna við bæjarráð Helga Bjarnadóttir, leikskólastjóri um starfsmannahald og aðstæður á leikskólanum Arakletti, Patreksfirði.
Bæjarráð heimilar ráðningu starfsmanns frá og með haustmánuðum í stöðu stuðningsfulltrúa við leikskóla Vesturbyggðar.
13. júní 2016 – Bæjarráð
Lagt fram bréf dags. 14. apríl sl. frá Ásþóri Ragnarssyni, sálfræðingi hjá Sérfræðiþjónustu leik- og grunnskóla varðandi starfsmannahald á leikskólanum Arakletti varðandi sérkennslu.
Bæjarráð óskar eftir því að leikskólastjóri mæti á næsta fund bæjarráðs.