Málsnúmer 1606009
13. júní 2016 – Skipulags og umhverfisráð
Lagt fram bréf, dags. 08.06.16, frá sýslumanninum á Vestfjörðum með ósk um umsögn vegna endurnýjunar rekstrarleyfis fyrir veitingastað í flokki II fyrir Stúkuhúsið ehf, að Aðalstræti 50, 450 Patreksfirði. kt.450911-0890, allt að 50 gestir.
Skipulags- og umhverfisráð gerir ekki athugasemdir við endurnýjun veitingaleyfis fyrir Stúkuhúsið ehf.
13. júní 2016 – Bæjarráð
Lagt fram bréf ásamt fylgiskjölum dags. 8. júní sl. frá Sýslumanninum á Vestfjörðum með beiðni um umsögn vegna umsóknar um endurnýjun rekstrarleyfis að reka veitingarstað í flokki II í Stúkuhúsinu, Aðalstræti 50 Patreksfirði.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við endurnýjun rekstrarleyfis að reka veitingarstað í flokki II í Stúkuhúsinu, Aðalstræti 50 Patreksfirði.