Málsnúmer 1606011
13. júní 2016 – Skipulags og umhverfisráð
Lagt fram bréf, dags. 09.06.16, frá sýslumanninum á Vestfjörðum með ósk um umsögn um endurnýjun gistileyfis í flokki V og veitingaleyfis í flokki II fyrir Keran Stueland Ólason kt.180766-4999 vegna Hótel Breiðavík, Breiðavík. Sótt er um fyrir 90-100 gesti.
Skipulags- og umhverfisráð gerir ekki athugasemdir við endurnýjun gisti- og veitingaleyfis fyrir Hótel Breiðavík.
13. júní 2016 – Bæjarráð
Lagt fram bréf ásamt fylgiskjölum dags. 9. júní sl. frá Sýslumanninum á Vestfjörðum með beiðni um umsögn vegna umsóknar á endurnýjun rekstrarleyfis að reka gistingu samkvæmt gistiflokki V/veitingarstað í flokki II í Hótel Breiðavík, Breiðavík Vesturbyggð.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við endurnýjun rekstrarleyfis að reka gistingu samkvæmt gistiflokki V/veitingarstað í flokki II í Hótel Breiðavík, Breiðavík Vesturbyggð.