Hoppa yfir valmynd

Bæjarstjórn #247

Fundur haldinn í fundarsal bæjarstjórnar að Aðalstræti 63, Patreksfirði, 16. maí 2012 og hófst hann kl. 17:00

    Fundargerð ritaði
    • Þórir Sveinsson skrifstofustjóri

    Bæjarstjórn Vesturbyggðar kom saman til 247. fundar miðvikudaginn 16. maí 2012 kl. 17:00 í fundarsal bæjarstjórnar að Aðalstræti 63, Patreksfirði.
    Forseti bæjarstjórnar Friðbjörg Matthíasdóttir setti fundinn og kannaði hvort athugasemdir séu við fundarboðun. Svo var ekki.

    Fjarverandi bæjarfulltrú

    Fundargerðir til staðfestingar

    1. Bæjarstjórn - 246

    Fundargerðin lögð fram til kynningar.

      Málsnúmer 1204017F

      Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


      2. Bæjarráð - 643

      1.   Fundargerðin er í 17. töluliðum.
      Til máls tóku: Forseti, bæjarstjóri og MÓH.
      Fundargerðin staðfest samhljóða.

        Málsnúmer 1205007F 2

        Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


        3. Skipulags- og byggingarnefnd - 162

        Fundargerðin er í 7. töluliðum.
        Til máls tók: Forseti.
        1.tölul.: Lögð fram til samþykktar tillaga að deiliskipulagi vegna hafnarsvæðisins á Patreksfirði. Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillöguna og sendir hana til umsagnaraðila og til auglýsingar skv. 41. grein skipulagslaga nr. 123/2010.
        3.tölul.: Lagt fram erindi frá Vesturbyggð; lýsing á skipulagsverkefni og matslýsing fyrir breytingu á aðalskipulagi Vesturbyggðar 2006-2018 vegna fyrirhugaðs iðnaðarsvæðis á Bíldudal. Bæjarstjórn samþykkir samhljóða skipulagslýsinguna og matslýsinguna óbreyttar að undangengnu hættumati vegna ofanflóða.
        7.tölul.: Bæjarstjórn vísar liðnum til byggingarfulltrúa til afgreiðslu.
        Fundargerðin staðfest samhljóða.

          Málsnúmer 1205006F 2

          Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


          4. Fræðslunefnd - 89

          Fundargerðin er í 8. töluliðum.
          Til máls tóku:  Bæjarstjóri, ÁSG og AJ.
          1.tölul.: Bæjarstjórn tekur undir þakkir fræðslunefndar vegna bókagjafar til Héraðsbókasafns Vesturbyggðar, Bíldudal frá Höskuldi Skarphéðinssyni, frv. skipherra Landhelgisgæslunnar.
          8.tölul. Bæjarstjórn sendir 9. bekk Patreksskóla innilegar hamingjuóskir vegna 1. verðlauna sem bekkurinn hlaut fyrir skólaverkefni sem var á vegum Landsbyggðarvina í Reykjavík og nágrenni og ber nafnið Heimabyggðin mín, nýsköpun, heilbrigði og forvarnir, skólaárið 2011-2012. Undirtitill verkefnis 9. bekkjar Patreksskóla var: ”Það er allt í lagi að láta sig dreyma“ og fjallar um hvernig nýta megi gamla Straumneshúsið á Patreksfirði sem félagsmiðstöð fyrir ungt fólk í Vesturbyggð.  Bæjarstjórn sendir jafnframt Grunnskóla Vesturbyggðar og foreldrum hamingjuóskir með árangur 9. bekkjar.
          Fundargerðin staðfest samhljóða.

            Málsnúmer 1205008F

            Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


            5. Íþrótta- og æskulýðsnefnd - 56

            Fundargerðin er í 5. töluliðum.
            Til máls tók: Forseti.
            5.tölul. Bæjarstjórn Vesturbyggðar óskar Sögu Ólafsdóttur til hamingju með kjör á íþróttamanni HHF ársins 2011.
            Fundargerðin staðfest samhljóða.

              Málsnúmer 1205003F

              Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


              Almenn erindi

              6. Fjallskil

              Lögð fram drög að fjallskilasamþykkt fyrir Barðastranda- og Ísafjarðarsýslur til seinni umræðu.
              Til máls tók: Forseti.
              Bæjarstjórn samþykkir samhljóða fjallskilasamþykkt fyrir Barðastranda- og Ísafjarðarsýslur.

                Málsnúmer 1205007

                Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


                7. Ársreikningur Vesturbyggðar 2011

                Lagður fram ársreikningur Vesturbyggðar og stofnana hans fyrir árið 2011 ásamt skýrslu löggiltra endurskoðenda sveitarfélagsins til seinni umræðu.
                Til máls tóku: AJ, forseti og bæjarstjóri.
                Bæjarstjórn ítrekar bókun sína frá 246.fundi sínum 2. maí sl.: ”Jákvæð merki eru um rekstrarbata hjá sveitarfélaginu og er niðurstaða ársreiknings fyrir árið 2011 viðunandi. Gerð var mikil niðurskurðarkrafa hjá stofnunum sveitarfélagsins í fjárhagsáætlun síðasta árs og aftur í aðgerðaráætlun með ráðgjöfum Eftirlitsnefndar um fjármál sveitarfélaga sl. haust. Frávik hjá deildum eru ekki veruleg nema hjá Fráveitu og skýrist það einna helst af áralöngu viðhaldsleysi sem skýrir tíðar bilanir, bæði á Patreksfirði og Bíldudal sem hefur leitt til umfangsmeiri viðgerða en áætlanir hafa gert ráð fyrir. Einnig er fjármagnskostnaður öllu hærri en gert var ráð fyrir í fjárhagsáætlun síðasta árs vegna hærri vaxta og meiri verðbólgu en spár gerðu ráð fyrir. Þá eiga þær sparnaðaraðgerðir sem gripið var til á haustdögum og endurskipulagning sem farið var í í kjölfarið einnig eftir að skila sér að fullu, en stöðugt er unnið að aukinni hagræðingu í rekstri, meira aðhaldi og aga í útgjöldum.
                Helstu lykiltölur úr ársreikningi samstæðu Vesturbyggðar:
                ·       Niðurstaða rekstrar er jákvæð um 52,3 millj.kr. og skuldahlutfall nemur 173,8% í árslok 2011. Þetta hlutfall var 187,2% í árslok 2010.
                ·       Bókfærðar heildarskuldir og skuldbindingar sveitarfélagsins hafa á árinu 2011 lækkað um 62,4 milljónir króna.
                ·       Samkvæmt rekstrarreikningi ársins 2011 námu rekstrartekjur A og B hluta 743,8 millj. kr. samanborið við 724,1 millj. kr. á árinu 2010. Hækkun milli ára nemur því 2,7%.
                ·       Rekstrargjöld A og B hluta, þ.e. laun og launatengd gjöld, annar rekstrarkostnaður og afskriftir námu á árinu 739,1 millj. kr. en voru 730,0 millj. kr. á árinu 2010. Hækkun frá fyrra ári nemur 1,3%.
                ·       Í ársreikningi kemur fram að  mismunur tekna og gjalda Aðalsjóðs er jákvæður um 74,5 millj. kr. og Eignasjóðs jákvæður um 23,3 millj. kr.
                ·       Hafnarsjóður, Vatnsveita, Fráveita, Félagslegar íbúðir og Fasteignir Vesturbyggðar ehf. teljast til B hluta sveitarfélagsins. Rekstrarniðurstaða B hluta í heild sinni er neikvæð um 45,4 millj. kr.
                ·       Fjármunatekjur umfram fjármagnsgjöld A og B hluta árið 2011 námu 47,6 millj. kr. en fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur voru 224,8 millj. kr. árið 2010. Þetta skýrist af niðurfellingu á láni að upphæð 140 millj.kr. vegna kaupa á stofnfjárbréfum í SPKEF.
                ·       Samkvæmt sjóðstreymisyfirliti nam veltufé frá rekstri A og B hluta 35,3 millj. kr. á árinu 2011 samanborið við 12,0 millj. kr. á árinu 2010. Að teknu tilliti til breytinga á rekstrartengdum eignum og skuldum nam handbært fé frá rekstri A og B hluta um 37,9 millj. kr. samanborið við neikvætt handbært fé frá rekstri 13,2 millj. kr. á árinu 2010.
                ·       Fjárfestingarhreyfingar (útborganir umfram innborganir) á árinu í A og B hluta námu 16,9 millj. kr. samanborið við 17,9 millj. kr. á árinu 2010.
                ·       Afborganir langtímalána umfram lántökur námu 8,7 millj. kr. samanborið við lántökur umfram afborganir 3,1 millj. kr. árið áður.
                ·       Handbært fé hækkaði um 12,3 millj. kr. á árinu og nam það 40,2 millj. kr. í árslok 2011.“
                Ársreikningur bæjarsjóðs Vesturbyggðar og stofnana hans fyrir árið 2011 samþykktur samhljóða.

                  Málsnúmer 1204041 3

                  Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


                  Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:00