Fundur haldinn í Aðalstræti 63, Patreksfirði, 13. september 2016 og hófst hann kl. 09:00
Fundargerð ritaði
- Þórir Sveinsson skrifstofustjóri
Almenn erindi
1. Rekstur og fjárhagsstaða 2016.
Lagt fram yfirlit rekstrar fyrstu sjö mánuði ársins, janúar-júlí 2016.
Lagt fram til kynningar.
Málsnúmer 1603003 12
2. EFS óskar eftir útskýringum á frávikum í rekstri árið 2015
Lagt fram bréf dags. 2. september 2016 frá Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga varðandi niðurstöðu ársreiknings 2015.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara erindinu.
Málsnúmer 1609012 2
3. Atvinnu-og nýsköpunarráðuneytið umsókn um byggðakvóta fiskveiðiársins 2016-2017
Lagt fram bréf dags. 6. september sl. frá atvinnu- og nýsköpunarráðuneytinu þar sem auglýst er eftir umsóknum um byggðakvóta fiskveiðiársins 2016/2017.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að sækja um byggðakvóta fyrir komandi fiskveiðiárs. Bæjarráð felur bæjarstjóra að óska eftir að Hinrik Greipsson, sérfræðingur hjá atvinnu- og nýsköpunarráðuneytinu, komi til fundar við bæjarráð og atvinnu- og menningarráð.
Málsnúmer 1609026 2
4. Samtök sjávarútvegssveitarfélaga aðalfundarboð 23.sept.2016
Lagt fram tölvubréf dags. 9. september sl. frá framkvæmdastjóra Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga með boðun á aðalfund félagsins 2016 sem haldinn verður 23. september nk. á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2, Reykjavík og hefst fundurinn kl. 13:00.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að sækja fundinn.
Málsnúmer 1609019
6. SSKS aðalfundarboð 23.september 2013
Lagt fram tölvubréf dags. 8. september sl. frá Vali Rafni Halldórssyni f.h. Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum með boðun á ársfund félagsins 2016 sem haldinn verður 23. september nk. á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2, Reykjavík og hefst fundurinn kl. 13:00.
Bæjarráð felur forseta bæjarstjórnar að sækja fundinn.
Málsnúmer 1609018
7. Fjallskil 2016
Rætt um fjallskil 2016.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að koma að athugasemdum til fjallskilanefndar um fjallskilaseðil 2016.
Málsnúmer 1608022 8
9. BsVest fundargreðir verkefnahóps og stjórnar
Lagðar fram fundargerðir 5. fundar stjórnar Byggðasamlags Vestfjarða um málefni fatlaðs fólks frá 22. ágúst sl. og 57. fundar verkefnahóps BsVest frá 22. ágúst sl.
Lagt fram til kynningar.
Málsnúmer 1609004
Til kynningar
5. Jöfnunarsjóður ársfundarboð 21.september 2016
Lagt fram bréf dags. 6. september sl. frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga með boðun á ársfund sjóðsins sem haldinn verður 21. september nk. á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2, Reykjavík og hefst fundurinn kl. 16:00.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að sækja fundinn.
Málsnúmer 1609017
8. Fjórðungssambandið fundargerðir stjórnar 9.og 29.ágúst 2016
Lagðar fram fundargerðir stjórnar Fjórðungssambands Vestfirðinga frá 9. ágúst sl. og 29. ágúst sl.
Lagt fram til kynningar.
Málsnúmer 1609010
10. SÍS fundargerð stjórnar nr. 842
Lögð fram fundargerð 842. fundar stjórnar Sambands ísl. sveitarfélaga frá 2. september sl.
Lagt fram til kynningar.
Málsnúmer 1609020
11. Vegagerðin varðar beiðni um snjómokstur Bíldudalsflugvöllur - Flókalundur
Lagt fram afrit af bréfi Vegagerðarinnar dags. 5. september sl. til Arnarlax hf. varðandi vetrarþjónustu á leiðinni Flókalundur að flugvellinum á Bíldudal.
Bæjarráð bendir á mikilvægi bættra vetrarsamganga í sveitarfélaginu í ljósi mjög vaxandi umsvifa útflutningsfyrirtækja sem reiða sig á öruggar samgöngur allt árið. Bæjarráð skorar á Vegagerðina að endurskoða afstöðu sína um að ekki sé unnt að koma til móts við óskir Arnarlax hf. um aukna vetrarþjónustu á leiðinni Flókalundur-flugvöllurinn Bíldudal.
Málsnúmer 1609016
12. Húsmæðraorlof skýrsla vegna ferðar 2015
13. Umhverfisráðuneytið kynnir "Dagur íslenskrar náttúru" 16.september nk.
Lagt fram tölvubréf til sveitarfélaga dags. 29. ágúst sl. um Dag íslenskrar náttúru sem haldinn verður 16. september nk.
Lagt fram til kynningar.
Málsnúmer 1609006
14. Umhverfis-og samgöngunefnd frumvarp til laga um Umhverfisstofnun mál nr.674
Lagt fram tölvubréf dags. 24. ágúst sl. frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis með beiðni um umsögn um frumvarp til laga um Umhverfisstofnun (heildarlög), 674. mál.
Lagt fram til kynningar.
Málsnúmer 1609003
Fundargerðir til staðfestingar
15. HeilVest fundargerð stjórnar nr.108
Lögð fram fundargerð 108. fundar Heilbrigðisnefndar Vestfjarða frá 2. september sl.
Lagt fram til kynningar.
Málsnúmer 1609011
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 12:03