Fundur haldinn í Aðalstræti 63, Patreksfirði, 27. janúar 2015 og hófst hann kl. 10:15
Fundargerð ritaði
- Elsa Reimarsdóttir
Almenn erindi
1. Hjúkrunarheimili í Vestur-Barðastrandarsýslu
Talsvert efni hefur legið til grundvallar vinnu nefndarinnar varðandi mat á húsnæði Heilbrigðiststofnunar Vestfjarðar fyrir hjúkrunarheimili.
Niðurstaða nefndarinnar er sú að núverandi húsnæði sé óviðunandi sem hjúkrunarheimili. Því til grundvallar liggja eftirfarandi rök:
1. Húsnæðið uppfyllir ekki faglegar lágmarskröfur um húsnæði samkvæmt embætti landlæknis.
2. Húsnæðið og umhverfi þess getur ekki uppfyllt kröfur í samræmi við nútíma hugmyndafræði um t.d. útisvæði, einstaklingsrými, sameiginleg rými og vinnnuvistfræðilegar aðstæður. Auk þess sem það er neikvætt fyrir starfsemina að blanda saman hjúkrunar- og sjúkrarýmum.
Nefndin lítur svo á að nú liggi fyrir endanlegt mat hennar. Áframhaldandi vinna nefndarinnar verði því að ákvarðast af vilja samráðsnefndar.
Málsnúmer 1501064 2
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:15