Málsnúmer 2007062
14. ágúst 2020 – Skipulags og umhverfisráð
Erindi frá Strönd ehf, dags. 30. júlí. Í erindinu er sótt um endurnýjun lóðarleigusamnings fyrir Saumastofuna Krossholtum Barðaströnd, landnr. 139840.
Skipulags- og umhverfisráð leggur til við bæjarstjórn að erindið verði samþykkt en vekur jafnframt athygli bæjarstjórnar á því að í eldri lóðarleigusamningi eru forkaupsréttarákvæði.
19. ágúst 2020 – Bæjarstjórn
Erindi frá Strönd ehf, dags. 30. júlí 2020. Í erindinu er sótt um endurnýjun lóðarleigusamnings fyrir Saumastofuna Krossholtum Barðaströnd, landnr. 139840.
Til máls tóku: Forseti, FM og bæjarstjóri.
Bæjarstjórn samþykkir endurnýjun lóðarleigusamningsins.