Málsnúmer 1205059
9. maí 2012 – Fræðslunefnd
Lögð fram ársskýrsla bókasafna Héraðsbókasafns Vesturbyggðar frá yfirbókaverði. Bæjarstjóri lagði fram tölvupóst frá ættingum Höskuldar Skarphéðinssonar frv. skipherra þar sem tilkynnt er um bókagjöf. Fræðslunefnd þakkar fyrir höfðinglega gjöf og felur bæjarstjóra að vera í sambandi við hlutaðeigandi aðila.