Fundur haldinn í Aðalstræti 63, Patreksfirði, 8. apríl 2014 og hófst hann kl. 17:00
Fundargerð ritaði
- Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri
Til kynningar
1. Endurheimt votlendis í Selárdal
Víðir Hólm Guðbjartsson vék af fundi.
Lagðir fram til kynningar tölvupóstar frá Sigurði Þráinssyni, fjármálaráðuneyti og svar bæjarstjóra til hans, varðandi afstöðu Vesturbyggðar til endurheimt votlendis í Selárdal.
Málsnúmer 1311011 2
4. Grenjavinnsla
Almenn erindi
2. SK varðar votlendi í Selárdal
Víðir Hólm Guðbjartsson vék af fundi.
Lagt fram bréf frá Sólveigu Kjartansdóttur vegna votlendis í Selárdal.
Vesturbyggð getur ekki mælt með uppfyllingu skurða í Selárdal enda eru tún nú þegar nýtt til slægju af nágrannabændum. Varðandi ábúð þá er bent á að fyrirliggjandi deiliskipulag í Selárdal samræmist ekki þessum hugmyndum enda er umræddur staður sem vísað er í ekki skilgreindur sem byggingarlóð í deiliskipulaginu.
Víðir Hólm kom aftur inn á fundinn eftir afgreiðslu.
Málsnúmer 1402027 2
3. Grenjavinnsla 2014
Rætt um grenjavinnslu 2014. Landbúnaðarnefnd mun leggja fram áætlun til þriggja ára um hvernig lágmarka megi það tjón til lengri tíma sem refurinn er talinn valda á landsvæði sveitarfélagsins.
Bæjarstjóra falið að auglýsa eftir grenjaskyttum til þriggja ára fyrir Vesturbyggð og gera drög að áætlun um grenjavinnslu og samningum við veiðimenn. Umsóknarfrestur verður til 1. maí.
Landbúnaðarnefnd hvetur Fjórðungssamband Vestfirðinga til að samræma reglur um grenjavinnslu í fjórðungnum. Óeðlilegt er að sum sveitarfélög stundi ekki grenjavinnslu og færa þannig ábyrgðina á nágrannasveitarfélögin.
Málsnúmer 1404030
5. Bæjarmálasamþykkt Vesturbyggðar
6. Fjallskil
Landbúnaðarnefnd óskar eftir upplýsingum um starfsemi fjallskilanefndar á næsta fundi.
Málsnúmer 1404043
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:00