Hoppa yfir valmynd

Landbúnaðarnefnd #20

Fundur haldinn í fundarsal bæjarstjórnar að Aðalstræti 63, Patreksfirði, 10. september 2012 og hófst hann kl. 17:00

    Fundargerð ritaði
    • Ásgeir Sveinsson formaður landbúnaðarnefndar Vesturbyggðar og Tálknafjarðarhrepps

    Sameiginlegur fundur landbúnaðarnefndar Vesturbyggðar og fjallskilanefndar Tálknafjarðarhrepps.

    Almenn erindi

    1. Fjallskil 2012

    Landbúnaðarnefnd Vesturbyggðar og fjallskilanefnd Tálknafjarðarhrepps leggja til við bæjarstjórn Vesturbyggðar og hreppsnefnd Tálknafjarðarhrepps að stofnuð verði sameiginleg fjallskilanefnd Vestur-Barðastrandarsýslu skv Fjallskilasamþykkt Barðastrandar-og Ísafjarðarsýslna skipaðri fimm mönnum; Fulltrúum frá Barðaströnd, Arnarfirði og fyrrum Rauðasandshreppi auk formanna Landbúnaðarnefndar Vesturbyggðar og fjallskilanefnd Tálknafjarðarhrepps.

    Fjallskil verða óbreytt frá fyrra ári, hvort sveitarfélag sér um sín fjallskil. Að ári mun fjallskil fara fram skv. nýrri Fjallskilasamþykkt Barðastrandar-og Ísafjarðarsýslna og sendir út fjallskilaseðlar skv samþykktinni.

    Fjallskilanefnd Tálknafjarðarhrepps leggur áherslu á að við álagningu fjallskilagjalds á eyðijarðir og fjárlausar jarðir verði landverð notað sem gjaldstofn.

      Málsnúmer 1205009

      Skráðu netfangið þitt og við sendum tilkynningu ef það er skráð fundargerð með þessu málsnúmeri.


      Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:00