Fundur haldinn í ráðhúsi Vesturbyggðar, 21. ágúst 2024 og hófst hann kl. 16:15
Nefndarmenn
- Gunnþórunn Bender (GB) aðalmaður
- Jenný Lára Magnadóttir (JLM) aðalmaður
- Maggý Hjördís Keransdóttir (MHK) aðalmaður
- Matthías Ágústsson (MÁ) varamaður
- Páll Vilhjálmsson (PV) aðalmaður
- Petrína Sigrún Helgadóttir (PSH) varamaður
- Tryggvi Baldur Bjarnason (TBB) aðalmaður
Starfsmenn
- Gerður Björk Sveinsdóttir (GBS) bæjarstjóri
- Nanna Lilja Sveinbjörnsdóttir (NLS) sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði
- Nanna Lilja Sveinbjörnsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Hljóðupptaka
Almenn erindi
1. Skýrsla bæjarstjóra
Bæjarstjóri Vesturbyggðar fór yfir helstu verkefni síðustu vikna.
Til máls tóku: Forseti og bæjarstjóri
Málsnúmer 2408050
2. Samþykkt um stjórn Vesturbyggðar
Tekið fyrir í fyrri umræðu, breytingar á samþykktum um stjórn Sameinaðs sveitarfélags Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar þar sem Sameinað sveitarfélag Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar verður skipt út fyrir Vesturbyggð.
Jafnframt verður orðið öldungaráð sett inn í stað orðsins öldrunarráð þar sem það kemur fyrir í samþykktunum.
Til máls tóku: Forseti
Vísað áfram til seinni umræðu.
Málsnúmer 2406089 7
3. Dalbraut 39. Breyting á aðalskipulagi.
Fyrir liggur erindi frá Emil M. Magnússyni dagsett 27. júní 2024 þar sem óskað er eftir breytingu á aðalskipulagi Vesturbyggðar. Breytingin sem óskað er eftir felur í sér breyttri landnotkun á lóðinni að Dalbraut 39 á Bíldudal. Í Aðalskipulagi Vesturbyggðar 2018-2035 er húsið á skipulögðu íbúðarsvæði og er óskað eftir að lóðin verði skilgreind sem verslunar- og þjónustusvæði. Ósk um breytingu er í tengslum við áform umsækjenda um umsókn um rekstrarleyfi fyrir gistiheimili.
Skipulags- og framkvæmdaráð tók málið fyrir á 2. fundi sínum þar sem það leggur til við bæjarstjórn að farið verði í breytingu á aðalskipulagi Vesturbyggðar þar sem gerð verði breyting á aðalskipulaginu þar sem skilgreiningu verði breytt í verslunar- og þjónustusvæði fyrir lóðina að Dalbraut 39. Skipulags- og framkvæmdaráð telur að breytingin sé þess eðlis að hún geti talist óveruleg og málsmeðferð verði því skv. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulags- og framkvæmdaráð hefur áhyggjur af fjölda bílastæða við húsið, Skipulags- og framkvæmdaráð fól skipulagsfulltrúa að kalla eftir umsögnum frá lóðarhöfum Dalbrautar 34, 35, 42 og Sælundi 1.
Til máls tók: Forseti
Bæjarstjórn samþykkir að farið verði í breytingu á aðalskipulag i Vesturbyggðar í samræmi við bókun skipulags- og framkvæmdaráðs þar sem gerð verði breyting á aðalskipulaginu þar sem skilgreiningu verði breytt í verslunar- og þjónustusvæði fyrir lóðina að Dalbraut 39.
Málsnúmer 2406169 4
Fundargerð
4.
Bæjarráð - 2
Lögð fram til kynningar fundargerð 2. fundar bæjarráðs, fundurinn var haldinn 25. júní 2024. Fundargerðin er í 20 liðum.
Til máls tók: Forseti
- 4.1. #2406004 – Hitaveita Krossholti
- 4.2. #2406111 – Til samráðs -Frumvarp til laga um loftlagsmál (ný heildarlög)
- 4.3. #2406104 – Til samráðs - Ný og uppfærð aðgerðaráætlun í loftlagsmálum
- 4.4. #2406081 – Til samráðs - Reglugerð um lista yfir störf sem falla undir 3. mgr. 8. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga, nr. 97-2002.
- 4.5. #2406048 – Til samráðs - Drög að reglugerð um breytingu á reglugerð um skoðun ökutækja
- 4.6. #2406038 – Til samráðs - Áform um heilstæða stefnumótun fullnustumála (Grænbók)
- 4.7. #2406037 – Til samráðs -Drög að flokkun fimm virkjunarkosta
- 4.8. #2406112 – Til samráðs - Áform um gerð samninga við Þekkingarsetur á landsbyggðinni
- 4.9. #2406041 – Grenjavinnsla 2024
- 4.10. #2406064 – Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2024
- 4.11. #2406040 – Brunnar Patreksfirði Endurgerð götu
- 4.12. #2406103 – Aflamark á Tálknafirði - ósk um umsögn
- 4.13. #2406146 – Stofnframlög
- 4.14. #2406080 – Beiðni til sveitarstjórnar um smölun ágangsfjár
- 4.15. #2406162 – Móatún, framkvæmdir 2024
- 4.16. #2406053 – Ráðning bæjarstjóra
- 4.17. #2406119 – Tillaga að lýsingu Svæðisskipulags Vestfjarða
- 4.18. #2406070 – Gjaldskrár
- 4.19. #2406155 – Landamerki Litla-Eyri - Bíldudalur
- 4.20. #2405001 – Fjórðungsþing að sumri 19. júní 2024
Málsnúmer 2406003F
5.
Bæjarráð - 3
Lögð fram til kynningar fundargerð 3. fundar bæjarráðs, fundurinn var haldinn 9. júlí 2024. Fundargerðin er í 13 liðum.
Til máls tók: Forseti
- 5.1. #2405083 – Stjórnskipan - skipan í ráð og nefndir
- 5.2. #2406080 – Beiðni til sveitarstjórnar um smölun ágangsfjár
- 5.3. #2407004 – Til samráðs - Áform um breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun.
- 5.4. #2406064 – Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2024
- 5.5. #2406172 – Upplýsingar um stöðu mála varðandi umhverfiseftirlit og framtíð heilbrigðiseftirlits.
- 5.6. #2403076 – Sólmyrkvi 12. ágúst 2026
- 5.7. #2406170 – Nýtingarleyfi til töku grunnvatns á Gileyri, Arnarlax - umsagnarbeiðni
- 5.8. #2407017 – Gjaldfrjálsar skólamáltíðir
- 5.9. #2407016 – Ráðning sviðsstjóra fjármála og stjórnsýslusvið
- 5.10. #2407015 – Reglur um auglýsingaskilti í þéttbýli í Vesturbyggð
- 5.11. #2406054 – Fjárhagsáætlun 2025 - 2028
- 5.12. #2407014 – Sumarlokun 2024 - Ráðhús Vesturbyggðar
- 5.13. #2407012 – Tilboð til sveitarfélaga um styrk til að ljúka lagningu ljósleiðara til allra lögheimila utan markaðssvæða í þéttbýli
Málsnúmer 2406010F
6.
Bæjarráð - 4
Lögð fram til kynningar fundargerð 4. fundar bæjarráðs, fundurinn var haldinn 23. júlí 2024. Fundargerðin er í 17 liðum.
Til máls tók: Forseti
- 6.1. #2406034 – Hjúkrunarrými á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða Patreksfirði
- 6.2. #2402045 – Fundargerðir Heilbrigðisnefndar Vestfjarðasvæðis 2024
- 6.3. #2406005F – Umhverfis- og loftslagsráð - 1
- 6.4. #2406006F – Skipulags- og framkvæmdaráð - 1
- 6.5. #2406008F – Heimastjórn Patreksfjarðar - 1
- 6.6. #2406009F – Heimastjórn Tálknafjarðar - 1
- 6.7. #2407001F – Heimastjórn Arnarfjarðar - 1
- 6.8. #2407002F – Heimastjórn fyrrum Barðastrandarhrepps og Rauðasandshrepps - 1
- 6.9. #2407004F – Umhverfis- og loftslagsráð - 2
- 6.10. #2407038 – Styrkvegir 2024 umsóknir
- 6.11. #2407010 – Viðhaldsþörf í Tálknafirði
- 6.12. #2407029 – Brú í Smælingjadal Tálknafirði - viðhaldsþörf
- 6.13. #2407018 – Tjaldsvæði á Bíldudal
- 6.14. #2407024 – Bíldudalsskóli - húsnæði
- 6.15. #2407005 – Tálknafjarðarhöfn, viðhaldsþörf
- 6.16. #2407028 – Fundargerð Aðalfundar FsVfj 2024
- 6.17. #2406013 – Sveitarstjórnarkosningar 2024
Málsnúmer 2407003F
7.
Bæjarráð - 5
Lögð fram til kynningar fundargerð 5. fundar bæjarráðs, fundurinn var haldinn 13. ágúst 2024. Fundargerðin er í 9 liðum.
Til máls tók: Forseti
- 7.1. #2408023 – Skipan fulltrúa í svæðisskipulagsnefnd Vestfjarða
- 7.2. #2406070 – Gjaldskrár
- 7.3. #2408025 – Fjallskilaseðill 2024
- 7.4. #2405050 – Skólamötuneyti á Patreksfirði
- 7.5. #2406054 – Fjárhagsáætlun 2025 - 2028
- 7.6. #2407064 – Framtíð verndarsvæðis Breiðafjarðar
- 7.7. #2407044 – Til samráðs Frumvarp til laga um breytingu á lögum um stöðu íslenskrar tungu og íslensks táknmáls
- 7.8. #2407065 – Samráð mál nr. 1432024, Drög að breytingu á reglugerð nr. 7452016 um vigtun og skráningu sjávarafla.
- 7.9. #2406054 – Fjárhagsáætlun 2025 - 2028
Málsnúmer 2408004F
8.
Bæjarráð - 6
Lögð fram til kynningar fundargerð 6. fundar bæjarráðs, fundurinn var haldinn 19. ágúst 2024. Fundargerðin er í 1 lið.
Til máls tók: Forseti
Málsnúmer 2408009F
9.
Skipulags- og framkvæmdaráð - 2
Lögð fram til kynningar fundargerð 2. fundar skipulags- og framkvæmdaráðs, fundurinn var haldinn 26. júlí 2024. Fundargerðin er í 6 liðum.
Til máls tók: Forseti
- 9.1. #2407057 – Orlofsbyggðin Flókalundi - Deiliskipulag
- 9.2. #2406169 – Dalbraut 39. Breyting á aðalskipulagi.
- 9.3. #2407018 – Tjaldsvæði á Bíldudal
- 9.4. #2406040 – Brunnar Patreksfirði Endurgerð götu
- 9.5. #2406040 – Brunnar Patreksfirði Endurgerð götu
- 9.6. #2406054 – Fjárhagsáætlun 2025 - 2028
Málsnúmer 2407005F
10.
Heimastjórn fyrrum Barðastrandarhrepps og Rauðasandshrepps - 2
Lögð fram til kynningar fundargerð 2. fundar heimastjórnar fyrrum Barðastrandahrepps og Rauðasandshrepps, fundurinn var haldinn 15. ágúst 2024. Fundargerðin er í 4 liðum.
Til máls tók: Forseti
- 10.1. #2406054 – Fjárhagsáætlun 2025 - 2028
- 10.2. #2407057 – Orlofsbyggðin Flókalundi - Deiliskipulag
- 10.3. #2408035 – Öryggi skólabarna frá Barðaströnd
- 10.4. #2407064 – Framtíð verndarsvæðis Breiðafjarðar
Málsnúmer 2408006F
11.
Heimastjórn Arnarfjarðar - 2
Lögð fram til kynningar fundargerð 2. fundar heimastjórnar Arnarfjarðar, fundurinn var haldinn 14. ágúst 2024. Fundargerðin er í 2 liðum.
Til máls tók: Forseti
- 11.1. #2406054 – Fjárhagsáætlun 2025 - 2028
- 11.2. #2407063 – Framkvæmdaleyfi óvirkur úrgangur Járnhól.
Málsnúmer 2408005F
12.
Heimastjórn Tálknafjarðar - 2
Lögð fram til kynningar fundargerð 2. fundar heimastjórnar Tálknafjarðar, fundurinn var haldinn 8. ágúst 2024. Fundargerðin er í 4 liðum.
Til máls tók: Forseti
- 12.1. #2406054 – Fjárhagsáætlun 2025 - 2028
- 12.2. #2406171 – Ráðning skólastjóra Tálknafjarðarskóla.
- 12.3. #2406170 – Nýtingarleyfi til töku grunnvatns á Gileyri, Arnarlax - umsagnarbeiðni
- 12.4. #2406162 – Móatún, framkvæmdir 2024
Málsnúmer 2408003F
13.
Heimastjórn Patreksfjarðar - 2
Lögð fram til kynningar fundargerð 2. fundar heimastjórnar Patreksfjarðar, fundurinn var haldinn 7. ágúst 2024. Fundargerðin er í 4 liðum.
Til máls tók: Forseti
- 13.1. #2406054 – Fjárhagsáætlun 2025 - 2028
- 13.2. #2407038 – Styrkvegir 2024 umsóknir
- 13.3. #2408002 – Patreksskóli, skólalóð endurnýjun og viðhald
- 13.4. #2406040 – Brunnar Patreksfirði Endurgerð götu
Málsnúmer 2408002F
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:38
Bæjarstjórn Vesturbyggðar kom saman til 3. fundar
miðvikudaginn 21. ágúst 2024 kl. 16:15 í Ráðhúsi Vesturbyggðar, Aðalstræti 75, Patreksfirði.
Gunnþórunn Bender forseti setti fundinn og kannaði hvort athugasemdir væru við fundarboðun. Svo var ekki.