Fundur haldinn í Brellum, fundarsal í ráðhúsi Vesturbyggðar, 24. apríl 2024 og hófst hann kl. 17:00
Nefndarmenn
- Anna Vilborg Rúnarsdóttir (AVR) aðalmaður
- Ásgeir Sveinsson (ÁS) aðalmaður
- Friðbjörn Steinar Ottósson (FSO) aðalmaður
- Guðrún Eggertsdóttir (GE) aðalmaður
- Jón Árnason (JÁ) aðalmaður
- Svanhvít Sjöfn Skjaldardóttir (SSS) aðalmaður
- Þórkatla Soffía Ólafsdóttir (ÞSÓ) aðalmaður
Starfsmenn
- Gerður Björk Sveinsdóttir (GBS) sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði
- Gerður Björk Sveinsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Almenn erindi
1. Ársreikningur 2023
Lagður fram til fyrri umræðu ársreikningur Vesturbyggðar og stofnana hans fyrir árið 2023 ásamt endurskoðunarskýrslu. Bæjarfulltrúar hafa fengið kynningu á niðurstöðum ársins 2023 ásamt endurskoðunarskýrslu frá endurskoðanda sveitarfélagins Haraldi Erni Reynissyni.
Til máls tók: Forseti
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að vísa ársreikningi 2023 til seinni umræðu.
Málsnúmer 2404006 3
2. Fjárhagsáætlun 2024 - viðaukar
Lagður fyrir viðauki 2 við fjárhagsáætlun 2024. Viðaukinn er lagður fyrir vegna breytinga á fyrirkomulagi á vaktsíma vegna barnaverndar. Kostnaður vegna viðaukans eru 2.182 þúsund og er mætt með lækkun á handbæru fé.
Viðaukinn hefur áhrif á handbært fé sem lækkar úr 50.982 þúsund í A hluta og verður 48.800 þúsund. Í A og B hluta lækkar handbært fé úr 110.795 þúsund í 108.613 þúsund.
Rekstrarniðurstaða í A hluta fer úr 22.334 þúsund í 20.152 þúsund. Í A og B huta fer rekstrarniðurstaðan úr 96.597 þúsund í 94.415 þúsund.
Bæjarráð tók viðaukann fyrir á 981. fundi sínum þar sem hann var samþykktur og vísað áfram til bæjartjórnar til staðfestingar.
Til máls tók: Forseti
Bæjarstjórn Vesturbyggðar samþykkir viðaukan samhljóða.
Málsnúmer 2402036 4
3. Skipan í kjörstjórnir
Bæjarstjórn Vesturbyggðar samþykkir að Edda Kristín Eiríksdóttir komi inn sem aðalmaður í yfirkjörstjórn í stað Hafdísar Rutar Rudolfsdóttir og Birna Hannesdóttir komi inn sem varamaður stað Eddu.
Hákon Bjarnason kemur inn sem aðalmaður í undirkjörstjórn í stað Eddu Kristínar á Barðaströnd og Elín Eyjólfsdóttir kemur inn sem varamaður í stað Hákons.
Til máls tók:Forseti
Samþykkt samhljóða
Málsnúmer 2402013 2
4. Reglur um stuðningsþjónustu
Reglum um stuðningsþjónustu lagðar fram. Sveitarfélögum er skilt að setja sér reglur um stuðningsþjónustu og hafa verið gefnar út leiðbeiningar þess efnis. Velferðarráð samþykkti reglurnar á 50. fundi sínum og vísaði þeim áfram til bæjarstjórnar til staðfestingar.
Til máls tók: Forseti
Bæjarstjórn Vesturbyggðar staðfestir reglurnar samhljóða
Málsnúmer 2403063 2
5. Deiliskipulag hafnar- og þjónustusvæðis á Patreksfirði - Óveruleg breyting.
Tekin fyrir tillaga að breytingu á deiliskipulagi hafnar- og þjónustusvæðis á Patreksfirði, dags. 11. apríl 2024. Tillagan felur í sér að sameiningu lóða við Bjarkargötu 10 og 12 í eina lóð. Á lóðinni verður heimilt að reisa eitt hús að hámarki 322 m2 með hámarkshæð 5,9 m. Um er að ræða óverulega breytingu á deiliskipulaginu.
Á 117. fundi skipulags- og umhverfisráðs lagði ráðið til við bæjarstjórn að tillagan fengi málsmeðferð skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Ráðið lagði til að grenndarkynnt verði fyrir lóðarhöfum Urðargötu 15, 17, 19 og 21, Bjarkargötu 7, 8, 11.
Þórkatla Soffía Ólafsdóttir víkur af fundi undir dagskrárliðunum.
Til máls tók: Forseti
Bæjarstjórn samþykkir með öllum greiddum atkvæðum að tillagan fái málsmeðferð skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Grenndarkynna skal breytinguna fyrir Urðargötu 15, 17, 19 og 21, Bjarkargötu 7, 8, 11.
Þórkatla Soffía Ólafsdóttir kemur aftur inná fundinn.
Málsnúmer 2404017 4
6. Tillaga að lýsingu Svæðisskipulags Vestfjarða
Lagt er fram bréf Fjórðungssambands Vestfirðinga, dags. 5. apríl 2024, ásamt tillögu að skipulags- og matslýsingu fyrir Vestfirði.
Bæjarráð Vesturbyggðar tók erindið fyrir á 981. fundi sínum þar sem það leggur til við bæjarstjórn að samþykkja skipulags- og matslýsinguna í samræmi við 1. mgr. 23. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Til máls tóku: Forseti og AVR
Bæjarstjórn Vestugbyggðar að tilllögu bæjarráðs samþykkir skipulags- og matslýsinguna í samræmi við 1. mgr. 23. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt samhljóða
Málsnúmer 2404021 2
Fundargerð
7.
Bæjarráð - 980
Lögð fram til kynningar fundargerð 980. fundi bæjarráðs, fundurinn var haldinn 26. mars 2024. Fundargerð er í 12 liðum.
Til máls tók: Forseti
- 7.1. #2403075 – Sameiginleg bakvakt í barnavernd á Vestfjörðum
- 7.2. #2403054 – Mál nr. 125 um hagkvæmniathugun á uppbyggingu Skógarstrandarvegar
- 7.3. #2403073 – Ákall eftir sjónarmiðum vegna endurskoðunar laga um verndar- og orkunýtingaráætlun.
- 7.4. #2312026 – Sveitarstjórnarkosningar 2024
- 7.5. #2403074 – Styktarsjóður EBÍ 2024
- 7.6. #2403024 – Vesturbyggð - Örútboð á raforku
- 7.7. #2403064 – Umsagnarbeiðni - Breyting á rekstrarleyfi - Flak - verbúðunum við Eyrargötu
- 7.8. #2401076 – Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2024
- 7.9. #2403026 – 69. fjórðungsþing Vestfirðinga að vori, 10. apríl 2024
- 7.10. #2403025 – Til samráðs -Drög að þingsályktunartillögu um framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2024-2027
- 7.11. #2403028 – Til samráðs - drög að frumvarpi um breytingu á lögum um opinber innkaup
- 7.12. #2403037 – Til samráðs -kosningar, kostnaðarskipting ríkis og sveitarfélaga
Málsnúmer 2403007F
8.
Bæjarráð - 981
Lögð fram til kynningar fundargerð 981. fundi bæjarráðs, fundurinn var haldinn 16. apríl 2024. Fundargerð er í 16 liðum.
Til máls tók: Forseti
- 8.1. #2404021 – Tillaga að lýsingu Svæðisskipulags Vestfjarða
- 8.2. #2401076 – Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2024
- 8.3. #2402039 – Fundargerðir Breiðafjarðarnefndar 2024
- 8.4. #2403080 – Til samráðs -Breyting á reglum um notkun á losunar- og sjósetningarbúnaði í skipum yfir 15 metrum að lengd samkvæmt reglugerð nr. 122-2004 og reglum nr. 189-1994.
- 8.5. #2403077 – Styrkvegir 2024 umsóknir
- 8.6. #2403087 – Fundargerðir stjórnar Náttúrustofa Vestfjarða 2024
- 8.7. #2404001 – Fundargerðir BsVest 2024
- 8.8. #2404007 – Fjarskiptaáætlun Vestfjarðastofa - úttekt á stöðu fjarskiptamála 2023-2024
- 8.9. #2404020 – Strandsvæðaskipulag við Breiðafjörð - bókun stjórnar Fjórðungssambands Vestifrðinga
- 8.10. #2402036 – Fjárhagsáætlun 2024 - viðaukar
- 8.11. #2403079 – Drög að stjórnunar- og verndaráætlun fyrir Látrabjarg í kynningarferli
- 8.12. #2401073 – Úttekt á starfssemi og framtíðarfyrirkomulagi náttúrustofa
- 8.13. #2403078 – Fundargerðir framkvæmdaráðs Velferðarþjónusta Vestfjarða
- 8.14. #2403081 – Til samráðs - endurskoðun greinasviða aðalnámskrá grunnskóla
- 8.15. #2403082 – Til samráðs -Kosningar -meðferð utankjörfundaratkvæða
- 8.16. #2403084 – Mál nr. 143 um málefni aldraðra (réttur til sambúðar)
Málsnúmer 2404001F
9.
Bæjarráð - 982
Lögð fram til kynningar fundargerð 982. fundi bæjarráðs, fundurinn var haldinn 22. apríl 2024. Fundargerð er í 5 liðum.
Til máls tók: Forseti
- 9.1. #2404006 – Ársreikningur 2023
- 9.2. #2312029 – Hafnarbraut, Bíldudal. Umsókn um lóð undir hótelbyggingu.
- 9.3. #2401073 – Úttekt á starfssemi og framtíðarfyrirkomulagi náttúrustofa
- 9.4. #2404026 – Til samráðs - drög að reglugerð um breytinu á reglugerð nr.162-2006 um gjaldtöku fyrirtækjaskrár, hlutafélagaskrár, samvinnufélagaskrár, almannaheillafélagaskrár o.fl., með síðari breytingum.
- 9.5. #2402030 – Kröfur fjármála- og efnahagsráðherra f.h. ríkisins um þjóðlendur á svæði 12
Málsnúmer 2404006F
10.
Undirbúningsstjórn vegna sameiningar Vesturbyggðar og Tálknafjarðarhrepps - 6
Lögð fram til kynningar fundargerð 6. fundar undirbúningsstjórnar vegna sameiningar Vesturbyggðar og Tálknafjarðarhrepps, fundurinn var haldinn 8. apríl 2024. Fundargerð er í 4 liðum.
Til máls tók: Forseti
- 10.1. #2404002 – Skilaskýrsla undirbúningsstjórnar til sameinaðs sveitarfélags Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar
- 10.2. #2404003 – Laun kjörinna fulltrúa í sameinuðu sveitarfélagi
- 10.3. #2404008 – Sveitarfélaganúmer nýs sameinaðs sveitarfélags
- 10.4. #2402014 – Upplýsingagjöf verkefnastjóra
Málsnúmer 2404002F
11.
Skipulags og umhverfisráð - 117
Lögð fram til kynningar fundargerð 117. fundar skipulags- og umhverfisráðs, fundurinn var haldinn 17. apríl 2024. Fundargerð er í 2 liðum.
Til máls tók: Forseti
- 11.1. #2403039 – Gæludýragrafreitur Patreksfirði
- 11.2. #2404017 – Deiliskipulag hafnar- og þjónustusvæðis á Patreksfirði - Óveruleg breyting.
Málsnúmer 2404003F
12.
Hafna- og atvinnumálaráð - 59
Lögð fram til kynningar fundargerð 59. fundar hafna- og atvinnumálaráðs, fundurinn var haldinn 16. apríl 2024. Fundargerð er í 2 liðum.
Til máls tók: Forseti
- 12.1. #2404019 – Patrekshöfn - Skoðun á öryggismálum og búnaði
- 12.2. #2404022 – Framkvæmdir og verkefni Hafnasjóðs 2024
Málsnúmer 2404004F
13.
Velferðarráð - 50
Lögð fram til kynningar fundargerð 50. fundar velferðaráðs, fundurinn var haldinn 28. mars 2024. Fundargerð er í 4 liðum.
Til máls tók: Forseti
- 13.1. #2403063 – Reglur um stuðningsþjónustu
- 13.2. #2311038 – Til samráðs - Grænbók í málefnum innflytjenda og flóttafólks
- 13.3. #2311043 – Ábending til sveitarfélaga um mikilvægi kynja- og jafnréttissjónarmiða
- 13.4. #2401103 – Gefum íslensku séns
Málsnúmer 2401014F
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:17
Bæjarstjórn Vesturbyggðar kom saman til 394. fundar
miðvikudaginn 24. apríl 2024 kl. 17:00 í Ráðhúsi Vesturbyggðar, Aðalstræti 75, Patreksfirði.
Jón Árnason forseti setti fundinn og kannaði hvort athugasemdir væru við fundarboðun. Svo var ekki.