Fundur haldinn í Aðalstræti 63, Patreksfirði, 24. júlí 2018 og hófst hann kl. 09:00
Fundinn sátu
- Ásgeir Sveinsson (ÁS) aðalmaður
- Iða Marsibil Jónsdóttir (IMJ) aðalmaður
- Þórkatla Soffía Ólafsdóttir (ÞSÓ) formaður
Fundargerð ritaði
- Gerður Björk Sveinsdóttir starfandi bæjarstjóri
Fundargerðir til staðfestingar
1. Skipulags og umhverfisráð - 49
Fundargerð 49. fundar skipulags og umhverfisráðs tekin til afgreiðslu.
Bæjarráð bókar sérstaklega um málsnr. 1705048, 1802022 og 1807033. Sjá bókanir hér að neðan.
Fundargerðin samþykkt samhljóða.
- 1.1. #1807042 – Kosning formanns, varaformanns og ritara. Skipulags- og umhverfisráð
- 1.2. #1807012 – Umsagnarbeiðni, Neðri-Rauðsdalur
- 1.3. #1806017 – Umsagnarbeiðni, rekstrarleyfi Verbúðin við Eyrargötu.
- 1.4. #1807043 – Sýslumaðurinn á Vestfjörðum. Umsagnarbeiðni, gistileyfi stekkaból.
- 1.5. #1705048 – Flókalundur - Deiliskipulag
- 1.6. #1802022 – Deiliskipulag hafnarsvæði Bíldudal
- 1.7. #1807034 – Umsagnarbeiðni, Vestfjarðavegur(60) Hörgsnes - Borg og Bíldudalsvegur(63) Hvassnes - Helluskað
- 1.8. #1807033 – Umsókn um framkvæmdaleyfi. Strenglögn frá Brjánslæk að Þverá.
- 1.9. #1807035 – Umsókn um byggingarleyfi
- 1.10. #1807032 – Umsókn um byggingarleyfi, kælibúnt við vararafstöð á Patreksfirði.
- 1.11. #1807044 – Umsókn um byggingarleyfi - breytt útlit.
- 1.12. #1807045 – Umsókn um leyfi til breytinga á lóð, bílastæði o.fl.
Málsnúmer 1807003F 2
Almenn erindi
2. Fræðslumál á Barðaströnd
Tvö tilboð bárust í skólaakstur á Barðaströnd fyrir komandi skólaár. Á síðasta fundi bæjarráðs var bæjarstjóra falið að afla frekari gagna. Báðir bjóðendur sendu inn gögn. Er það niðurstaða bæjarráðs að samið verði við Ísak Jansson á grundvelli innsendra gagna.
Bæjarstjóra falið að ganga frá samningi við Ísak.
Samþykkt samhljóða
Málsnúmer 1803008 5
3. Ráðning bæjarstjóra
Meirihluti bæjarráðs leggur til að Rebekka Hilmarsdóttir verði ráðinn bæjarstjóri Vesturbyggðar kjörtímabilið 2018 - 2022. Formanni bæjarráðs og forseta falið að ganga frá ráðningarsamningi við Rebekku.
Samþykkt með tveimur atkvæðum. Ásgeir Sveinsson sat hjá.
Málsnúmer 1807026 3
4. Fjárhagsáætlun 2018 - viðaukar.
Lagðir fyrir viðaukar 6,7 og 8 við fjárhagsáætlun 2018.
Viðauki 6 að fjárhæð kr. 13 milljónir vegna kostnaðar við hönnun og ráðgjöf við þjónustumiðstöð við Kamb. Viðaukanum er vísað til stjórnar Vestur-botns og einnig til stjórnar Fasteigna Vesturbyggðar.
Viðauki 7 að fjárhæð kr. 18,2 milljónir vegna kostnaðar við Tjarnarbraut 3 á Bíldudal. Viðaukinn er fjármagnaðar með lækkun fjárfestinga á fjárhagsáætlun, Vatneyrarbúð 10 milljónir og vaðlaug á Bíldudal 8 milljónir.
Viðauki 8 að fjárhæð kr. 4,5 milljónir við fjárhagsáætlun 2018 vegna sáttar í máli Sigríðar Guðbjartsdóttur. Viðaukinn er fjármagnaðar með lántöku.
Málsnúmer 1804039 8
5. Umhverfisstofnun - Ólögleg skilti í náttúru landsins
Lagður fyrir tölvupóstur frá Umhverfisstofnun þar sem því er beint til sveitarfélagsins að vera vakandi fyrir ólöglegum skiltum í náttúru landsins.
Vísað til Skipulags- og umhverfisráðs.
Málsnúmer 1807039 2
Til kynningar
6. Bíldudalshöfn - uppbygging hafnarsvæðisins á Bíldudal.
Lagðar fram tillögur og kostnaðaráætlun hafnarframkvæmda á Bíldudal unnið í maí 2018 af Vegagerðinni.
Lagt fram til kynningar
Málsnúmer 1712032 6
7. Fjórðungssamband Vestfirðinga - umsögn FV um drög að Kerfisáætlun 2018-2027
Lögð fram til kynningar umsögn Fjórðungssambandsins um drög að kerfisáætlun Landsnets 2018-2027.
Málsnúmer 1807040
8. Umhverfis og auðlindaráðuneytið - Skipulag haf og strandsvæða
Bréf frá umhverfis og auðlindaráðuneytinu þar sem vakin er athygli á lögum nr. 88/2018 um skipulag haf- og strandsvæða sem tóku gildi þann 28. júní sl. Lagt fram til kynningar.
Málsnúmer 1807041
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:50