Hoppa yfir valmynd

Haust­fundur fyrir foreldra

Þriðju­daginn 24. sept­ember, verður haust­fundur í Bíldu­dals­skóla frá klukkan 17:00- 17:45.

Á fund­inum verður:

Farið yfir áherslur vetr­arins.

Kynning á Nurture.

Askurinn – foreldra­að­gangur kynntur.

Foreldrar eru eindregið hvattir til að koma og kynna sér skólastarf vetr­arins.


Skrifað: 18. september 2024