Hvað eru heimastjórnir?
Samhliða kosningum til sveitarstjórnar í sameinuðu sveitarfélagi Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar þann 4. maí næstkomandi verða kosnir fulltrúar í heimastjórnir. Hægt er að kjósa um alla íbúa hvers svæðis.
Verkefnastjóri sameiningarvinnu
Nanna Lilja Sveinbjörnsdóttir nannalilja@vesturbyggd.is / 450 2300
Heimastjórnir eru fastanefndir innan nýs sameinaðs sveitarfélags sem starfa í umboði sveitarstjórnar. Markmiðið með heimastjórnum er að heimamenn hafi aðkomu að ákvörðunum sem varða nærumhverfi sitt og geta ályktað um málefni sem snýr að viðkomandi byggðarlagi og komið málum á dagskrá bæjarstjórnar. Í hverri heimastjórn eru þrír fulltrúar, tveir sem kosnir eru sérstaklega samhliða sveitarstjórnarkosningum og einn bæjarfulltrúi. Kjörgengir til heimastjórna eru allir íbúar á kjörskrá Vesturbyggðar og Tálknafjarðarhrepps, samkvæmt kjörskrá á sínu svæði.
Kosið verður í heimastjórnir sama dag og kosið verður til sveitarstjórnar og eru tveir fulltrúar kosnir á hverjum stað. Heimastjórnirnar verða fjórar:
- Heimastjórn Arnarfjarðar
- Heimastjórn Tálknafjarðar
- Heimastjórn Patreksfjarðar
- Heimastjórn Rauðasandshrepps og Barðastrandar
Allir íbúar hvers svæðis eru í framboði og kýs hver íbúi einn einstakling á því svæði sem hann býr. Gerð verður sérstök kjörskrá fyrir hverja heimastjórn og hægt verður að kjósa utan kjörfundar allt að 20 dögum fyrir kjörfund. Hver kjósandi kýs einn aðalmann í heimastjórn í beinni kosningu og skrifar á kjörseðil fullt nafn og heimilisfang þess sem hann kýs. Þeir tveir sem fá flest atkvæði á hverju svæði eru kjörnir aðalmenn og munu sitja í heimastjórn fyrir sitt svæði næstu tvö árin eða þar til kosið verður næst til sveitarstjórnar. Næstu tveir þar á eftir eru kjörnir varamenn í samræmi við fjölda atkvæða.
Þar sem aðrar reglur gilda um kosningu í heimstjórn sem telst til íbúakosningar en kosningu í sveitarstjórn þá verður utankjörfundaatkvæðagreiðslan fyrir kosninguna í heimsstjórn með sama sniði og hún var fyrir sameiningakosninguna, á skrifstofum sveitarfélaganna en ekki hjá sýslumanni eins og gildir um hefðbundnar kosningar. Athugið að Rauðstrendingar kjósa til heimastjórnar á Patreksfirði líkt og í sveitarstjórnarkosningum.