Athugið að umsóknarfrestur er liðinn.
Yfirflokkstjórar hjá vinnuskóla
Vesturbyggð leitar að einstaklingum til starfa sem yfirflokkstjórar hjá vinnuskólanum sumarið 2024, annars vegar á Patreksfirði og hins vegar á Bíldudal.
Skrifað: 24. apríl 2024
Helstu verkefni og ábyrgð
- Skipuleggja sumarstarfið í samstarfi við áhaldahús og tómstundafulltrúa
- Leiðbeina ungmennum
- Vera í samskiptum við foreldra ungmenna
Hæfniskröfur
- Samskiptahæfni
- Jákvæðni
- Frumkvæði
- Samviskusemi
- Skipulagshæfni
- Stundvísi
Umsóknarfrestur er til og með 3. maí 2024
Um er að ræða 100%sumarstörf sem henta öllum kynjum og eru laun og starfskjör í samræmi við kjarasamninga Félags opinberra starfsmanna á Vestfjörðum og Samband íslenskra sveitarfélaga.
Frekari upplýsingar gefur Hafdís Helga Bjarnadóttir Tómstundafulltrúi Vesturbyggðar og tekur hún einnig á móti umsóknum.