Athugið að umsóknarfrestur er liðinn.
Vinnuskóli sumarið 2024
Vinnuskóli sumarið 2024 hefst miðvikudaginn 5. júní. Skráningar eru nú hafnar og verður tekið við umsóknum til miðvikudagsins 29.maí.
Skrifað: 21. maí 2024
- 10. bekkur: 8 vikur, 7 klst á dag.
- 9. bekkur: 8 vikur, 7 klst á dag.
- 8. bekkur: 6 vikur, 4 klst á dag.
- 7. bekkur: 4 vikur, 4 klst á dag.
Skráningareyðublað er hægt að nálgast hér fyrir neðan. Einnig er hægt að nálgast skráningarblöð til útfyllingar í ráðhúsi að Aðalstræti 75, Patreksfirði, á skrifstofu sveitarfélagsins að Strandgötu 38 á Tálknafirði og á skrifstofu Menningar- og ferðamálafulltrúa í Muggsstofu á Bíldudal.
Afhenda þarf útfyllt skráningareyðublað undirritað af foreldri með réttum reikningsupplýsingum starfsmanns, annars telst skráning ekki gild.