Hoppa yfir valmynd

Vinna við höggl­ista­verk hafin

Franski höggl­ista­mað­urinn Henri Patrick Stein hefur hafið vinnu lista­verks í stein við höfnina á Patreks­firði. Mikil vöntun er á aðstoð­ar­fólki.


Skrifað: 20. júní 2024

Auglýsingar

Hann óskar eftir að fá aðstoðarfólk í sjálfboðaliðastarfi, sem hefur áhuga á að læra réttu handtökin við steinsmíði og fleira. Engin krafa er gerð um þekkingu á steinsmíði, einungis áhugi á að fegra bæinn og að kynnast listgreininni. Starfið er ólaunað. Nauðsynleg verkfæri eru á staðnum.

Stefnt er á að verkið klárist í lok næstu viku, það er um 28. júní, og er bæjarbúum velkomið að koma við á höfninni og fylgjast með verkinu verða til í meistarans höndum.

Henri Patrick Stein er franskur högglistamaður sem hannaði og reisti minnisvarðann um franska sjómenn á Patreksfirði árið 2002. Upphaflega stóð til að hann kæmi og reisti nýja verkið 20 árum seinna, það er árið 2022, en Covid faraldurinn setti strik í reikninginn. Hann hefur komið víða við og hefur meðal annars unnið skúlptúra og ufsagrýlur nýverið fyrir endurreisn Notre Dame kirkjunnar í París. Hjónin María Óskarsdóttir og Halldór Árnason eru hvata- og umsjónarmenn verkefnisins, þau hafa lengi vel staðið að sýningu í tengslum við franska sjómenn á heimili þeirra að Mýrum 8 á Patreksfirði og gefið út bækur um efnið.

Áhugasöm vinsamlega hafið samband við Maríu í síma 892 5059, auk þess veita menningar- og ferðamálafulltrúi og hafnarstjórni nánari upplýsingar í tölvupósti og síma. 

Henri Patrick Stein að störfum