Útboð — Móatún
Gatnagerð, gröftur, fylling, vatnslagnir, holræsalagnir og burðarlag.
Skrifað: 6. júní 2024
Sameinað sveitarfélag Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar óskar eftir tilboðum í endurnýjun götu og lagna í Móatúni Tálknafirði.
Helstu stærðir
- Gröftur 3000m³
- Styrktarlag 800m³
- Burðarlag 270m³
- Holræsalagnir 740m
- Vatnslagnir 380m
- Fjarlægja slitlag og aka á brott 2838m²
Verktaki skal skila yfirborði tilbúnu undir malbik.
Útboðsmörk eru sýnd á yfirlitsmynd Verkís nr. C71.001
Verkið skal vinna samkvæmt útboðs- og verklýsingu „Móatún – Gatnagerð, gröftur, fylling, vatnslagnir, holræsalagnir og burðalag.“
Útboðsgögn verða afhend bjóðendum á rafrænu formi. Senda skal tölvupóst á Geir Gestsson geir@vesturbyggd.is eða Verkís jhb@verkis.is til að óska eftir að fá útboðsgögn.
- Auglýsingadagur útboðs er 06. júní 2024.
- Engin kynning verður á útboði.
- Fyrirspurnartíma vegna útboðs lýkur 18. júní 2024.
- Svarfrestur rennur út 21. júní 2024.
- Opnunartími tilboða verður 24. júní 2024 kl. 11:00. Bæjarskrifstofa sameinaðs sveitarfélags Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar. Aðalstræti 75, 450 Patreksfirði.
Áskilinn er réttur til að kalla eftir upplýsingum sem varða verkefnið.
Lögð er rík áhersla á að bjóðendur skili inn umbeðnum gögnum með tilboðum sínum. Geri þeir það ekki getur tilboði þeirra verið vísað frá.
Farið verður með allar upplýsingar frá bjóðendum sem trúnaðarmál.