Tómstundadagurinn 2024
Langar þig að vita hvaða félags- og tómstundastarfsemi er í boði fyrir fullorðið fólk á sunnanverðum Vestfjörðum? Tómstundadagur Vesturbyggðar verður haldinn í þriðja skiptið laugardaginn 21. september, í íþróttahúsinu á Tálknafirði kl. 14-16. Heitt verður á könnunni og 10. bekkur selur vöfflur í fjáröflunarskyni. English below / Polski poniżej.
Skrifað: 18. september 2024
Félagsstarfsemi í Vesturbyggð er fjölbreytt og allir íbúar ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi, þó getur verið torvelt að finna upplýsingar um hvað sé í boði og hvert leita skuli.
Á tómstundadeginum býðst félögum, klúbbum og öðrum hópum til boða að vera með bás og kynna sína starfsemi á opnu húsi. Þá geta íbúar komið og skoðað básana á meðan þeir gæða sér á kaffi og vöfflum frá 10. bekk.
Enn gefst félögum tækifæri á að skrá á sig bás með því að hafa samband við tómstundafulltrúa eða menningar- og ferðamálafulltrúa.
Öll eru hjartanlega velkomin!
Leisure Day
Are you interested in learning about the social and recreational activities available for adults in the southern Westfjords?
-
Tálknafjörður sports centre
-
Saturday September 21st
-
Open house from. 14:00-16:00
The 10th grade will be selling waffles as a fundraiser. Everyone welcome!
Dzień rekreacji
Czy chcesz się dowiedzieć, jakie zajęcia rekreacyjne i społeczne są dostępne dla dorosłych na południowych Fiordach Zachodnich?
-
Hali sportowej w Tálknafjörður
-
Sobotę, 21 września
-
Godzinach 14:00-16:00
10. klasa będzie sprzedawać gofry, aby zebrać fundusze. Wszyscy są serdecznie zaproszeni!
Menningar- og ferðamálafulltrúi
Valgerður María Þorsteinsdóttir muggsstofa@vesturbyggd.is / 450 2335