Tálknafjarðarskóli - lausar stöður til umsóknar
Tálknafjarðarskóli leitar að metnaðarfullum, sjálfstæðum og drífandi starfsmönnum með mikla þekkingu og áhuga á skólastarfi.
Skrifað: 15. ágúst 2024
Í Tálknafjarðarskóla eru lausar til umsóknar eftirfarandi stöður:
Leikskólastig
Leikskólakennari - 100% starfshlutfall
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Kennaramenntun og réttindi til kennslu í leikskóla
- Reynsla af kennslu á leikskólastigi
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði
- Færni í að vinna í teymum og að fjölbreyttum verkefnum
- Faglegur metnaður og ánægja af starfi með börnum
- Frumkvæði og skipulögð vinnubrögð
- Jákvæðni gagnvart skólaþróun
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum
Grunnskólastig
Kennari í stærðfræði/náttúrugreinum/raungreinum - Starfshlutfall samkvæmt samkomulagi (hlutastarf eða 100% stöðugildi)
Menntunar- og hæfniskröfur
- Kennaramenntun og réttindi til kennslu í grunnskóla
- Reynsla af kennslu stærðfræði / raungreina á grunnskólastigi
- Faglegur metnaður og ánægja af starfi með börnum
- Frumkvæði og skipulögð vinnubrögð
- Jákvæðni gagnvart skólaþróun
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum
Grunn- og leikskólastig
Starfsmaður í ræstingar - tímavinna
- Frumkvæði og skipulögð vinnubrögð
Umsóknarfrestur er til og með 31. ágúst 2024
Umsækjendur mega hvorki hafa hlotið refsidóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga (kynferðisbrot), nr. 19/1940 frá því að hann var sakhæfur (15 ára) né hafa hlotið refsidóm fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, á síðastliðnum fimm árum. Rétt er að vekja athygli á því að við ráðningu er heimilt að sækja upplýsingar úr sakaskrá.
Umsókn um starf skal fylgja skrá yfir menntun og starfsferil og afrit af leyfisbréfi ef við á, kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar með rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið og upplýsingar um umsagnaraðila.
Umsókn sendist á asa@vesturbyggd.is. Öllum umsóknum verður svarað. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um. Fáist ekki menntaður kennara í stöðu sem auglýst er, er heimilt að ráða annan í stöðuna og ræður hæfni umsækjanda þar um. Önnur uppeldismenntun og/eða reynsla er þá metin. Nánari upplýsingar um starfið veitir Ása Sigurlaug Harðardóttir, skólastjóri Tálknafjararskóla