Svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs
Öll sveitarfélög á Vestfjörðum vinna nú að sameiginlegri svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs. Gefst nú almenningi sex vikna frestur til að kynna sér tillöguna og umhverfismatsskýrsluna og koma athugasemdum sínum á framfæri áður en áætlunin er afgreidd af viðkomandi sveitarstjórnum.
Skrifað: 27. ágúst 2024
Tillaga að svæðisáætlun, ásamt umhverfismatsskýrslu í samræmi við III. kafla laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana, nr. 111/2012, liggur nú fyrir.
Hægt er að kynna sér tillöguna á vefsíðum Vestfjarðastofu, á vefsíðu Umhverfisráðgjafar Íslands ehf. og í Skipulagsgátt Skipulagsstofnunar. Skriflegar ábendingar og athugasemdir skulu berast í síðasta lagi þriðjudaginn 8. október 2024 á netfangið stefan@environice.is eða í pósti á heimilisfangið:
Umhverfisráðgjöf Íslands ehf.
v/ Svæðisáætlunar um meðhöndlun úrgangs á Vestfjörðum
Hvanneyrargötu 3
311 Hvanneyri