Hoppa yfir valmynd

Sumar­mark­aður Vest­fjarða­leið­ar­innar á Patró

Matvæla­fram­leið­endur, hand­verks­fólk, lista­fólk, smáfram­leið­endur og aðrir sem vilja taka þátt í mark­að­inum eru hvött til að skrá sig til leiks sem fyrst og sýna hvað Vest­fjarða­leiðin hefur upp á margt að bjóða.


Skrifað: 18. júní 2024

Auglýsingar

Vestfjarðaleiðin er ferðamannaleið um Vestfirði og Dali með einstökum áningarstöðum og upplifunum þar sem auðvelt er að kanna króka og kima svæðisins og upplifa óspillta náttúru. Á svæðinu eru líka fjölmargir matvælaframleiðendur, handverksfólk og aðrir smáframleiðendur sem með framlagi sínu bæta enn frekar á jákvæða upplifun gestanna sem sækja okkur heim. Vestfjarðastofu blæs nú til kynninga á þessum aðilum með sumarmörkuðum á Vestfjarðaleiðinni í júlí. Settir verða upp markaðir á fjórum stöðum og fjórum mismunandi dagsetningum sem hér segir:

  • Búðardalur 6. júlí
  • Hólmavík 14. júlí
  • Patreksfjörður 15. júlí
  • Ísafjörður 26. júlí

Hægt er að skrá sig til þátttöku á öllum mörkuðunum eða bara útvöldum. Dagana sem markaðirnir eru á Ísafirði og Patreksfirði eru skemmtiferðaskip í höfn svo það verður margt ferðafólk á ferli.

Ef einhverjar spurningar eru má hafa samband við Þórkötlu hjá Markaðsstofu Vestfjarða á thorkatla@vestfirdir.is.