Athugið að umsóknarfrestur er liðinn.
Störf í íþróttamiðstöð Tálknafjarðar
Vesturbyggð auglýsir laus til umsóknar störf í íþróttamiðstöðinni á Tálknafirði.
Skrifað: 11. júlí 2024
Um er að ræða vaktavinnu.
Helstu verkefni
- Öryggisgæsla og eftirlit
- Afgreiðsla og aðstoð við viðskiptavini
- Þrif
Menntunar- og hæfniskröfur
- Viðkomandi þarf að hafa náð 18 ára aldri
- Góð þjónustulund
- Hafa gott vald á íslensku og ensku
- Hreint sakavottorð
Umsóknarfrestur er til og með 1. ágúst 2024
Um laun og kjör fer eftir gildandi kjarasamningum. Vesturbyggð áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.
Forstöðumaður íþróttamiðstöðva tekur við umsóknum í tölvupósti og veitir hann einnig nánari upplýsingar í síma eða tölvupósti.