Störf í félagsmiðstöðvum Vesturbyggðar
Félagsmiðstöðvarnar í Vesturbyggð auglýsa eftir starfsfólki. Í Vesturbyggð eru þrjár félagsmiðstöðvar en þær eru félagsmiðstöðin Dímon á Bíldudal, félagsmiðstöðin Tunglið á Tálknafirði og félagsmiðstöðin Vest-End á Patreksfirði.
Skrifað: 9. ágúst 2024
Störfin felast í að aðstoða við skipulag á innra starfi félagsmiðstöðvanna. Einnig sér starfsmaður um þrif á félagsmiðstöðinni. Félagsmiðstöðvarnar er opnar tvö til þrjú kvöld í viku, tvo tíma í senn, og er starfið aðallega ætlað fyrir unglinga á unglingastigi grunnskóla.
Félagsmiðstöðvarnar í Vesturbyggð starfa náið saman og eru sameiginlegir viðburðir haldnir einu sinni í mánuði.
Hæfniskröfur
- Viðkomandi þarf að hafa náð 20 ára aldri
- Reynsla í vinnu með unglingum æskileg
- Sjálfstæð vinnubrögð, stundvísi og jákvætt viðmót skilyrði
- Áhugi fyrir að efla unglingastarf á svæðinu æskilegur
Umsóknarfrestur er til og með 23. ágúst 2024
Laun og starfskjör eru í samræmi við kjarasamninga Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttafélags. Vesturbyggð áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.
Frekari upplýsingar veitir Hafdís Helga Bjarnadóttir, tómstundafulltrúi, og tekur hún einnig á móti umsóknum.