Starf aðalbókara laust til umsóknar
Vesturbyggð óskar eftir að ráða til sín aðalbókara á fjármála- og stjórnsýslusviði. Aðalbókari ber ábyrgð á bókhaldi Vesturbyggðar, stofnana og fyrirtækja sveitarfélagsins. Um er að ræða tímabundið 50% starf til 31. maí 2026.
Skrifað: 12. júlí 2024
Aðalbókari annast bókun fylgiskjala, afstemmingar og aðra úrvinnslu úr fjárhagsbókhaldi, skýrslugerð og greiningarvinnu úr bókhaldi auk þess að annast uppgjör og áætlanagerð í samvinnu við sviðsstjóra og endurskoðendur. Þá kemur aðalbókari að undirbúningi og vinnu við fjárhagsáætlanir sveitarfélagsins.
Starfssvið
- Umsjón, eftirlit og ábyrgð á bókhaldi Vesturbyggðar
- Afstemmingar og önnur úrvinnsla úr fjárhagsbókhaldi
- Þátttaka við vinnslu uppgjörs og frágangs bókhalds
- Þátttaka í áætlanagerð
- Innra eftirlit
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Viðskiptafræðimenntun eða sambærileg menntun á sviði bókhalds
- Reynsla og góð þekking á bókhaldi er skilyrði
- Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu, einkum sveitarfélaga, er æskileg
- Góð tölvukunnátta skilyrði
- Nákvæmni og skipulagni í vinnubrögðum
- Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
- Jákvæðni og góðir samstarfshæfileikar
Umsóknarfrestur er til og með 2. september 2024
Laun og starfskjör fara eftir kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag. Nánari upplýsingar veitir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs Vesturbyggðar.
Umsókn ásamt ferilskrá skal senda á vesturbyggd@vesturbyggd.is merkt „Umsókn – Aðalbókari“.
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Nanna Lilja Sveinbjörnsdóttir nannalilja@vesturbyggd.is / 450 2300