Skipulagsauglýsingar - Balar og Hóll
Samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér auglýstar eftirfarandi deiliskipulagstillögur:
Skrifað: 15. júlí 2022
Balar 2
Um er að ræða óbyggða lóð við Bala þar sem gert er ráð fyrir fjölbýli á tveimur hæðum fyrir allt að 15 íbúðir.
Íbúðasvæði í landi Hóls, Bíldudal
Í deiliskipulaginu eru skilgreindar 56 íbúðir, 24 einbýli, 6 parhús, 4 raðhúsum og einu fjölbýli fyrir 6 íbúðir. Gert er ráð fyrir blágrænum ofanvatnslausnum á bæjarlandi en innan lóða er lagt til leysa ofanvatn af þökum eins og hægt er. Fyrir liggur fornleifaskráning fyrir svæðið.
Skipulagsgögn hér fyrir neðan
Tillögurnar munu liggja frammi á skrifstofu Vesturbyggðar, Aðalstræti 75, frá og með 19. júlí til 30. ágúst 2022 og er einnig til sýnis á heimasíðu Vesturbyggðar, www.vesturbyggd.is.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir til 30.ágúst 2022. Skila skal athugasemdum á skrifstofu Vesturbyggðar, Aðalstræti 75, 450 Patreksfirði. Athugasemdir og ábendingar skulu vera skriflegar.
Opið hús verður um tillögurnar og verður það haldið í ráðhúsi Vesturbyggðar, Aðalstræti 75 á Patreksfirði, þann 19. júlí frá kl. 15:00-17:00.
Virðingarfyllst,
Skipulagsfulltrúi Vesturbyggðar