Skipulagsauglýsing - Bíldudalshöfn
Samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér auglýst tillaga að eftirfarandi breytingu á deiliskipulagi Bíldudalshafnar.
Skrifað: 20. nóvember 2023
Breytingin felst í því að sameinaðar eru lóðir Strandgötu 14a, 14c og 14d í eina lóð undir heitinu Strandgata 14a. Strandgata 10-12 er minnkuð og hýsir nú einungis vatnshreinsistöð og geyma tengda meltuvinnslu. Í skipulaginu er lagt til að lóð sem áður var Strandgata 14e verði að Strandgötu 14c. Ennfremur eru gerðar breytingar á lóðanúmerum.
Tillagan liggur frammi á skrifstofu Vesturbyggðar, Aðalstræti 75, frá og með 23. nóvember 2023 til 5. janúar 2024 og er einnig til sýnis á heimasíðu Vesturbyggðar.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir til 2. janúar 2023.
Skila skal athugasemdum á skrifstofu Vesturbyggðar, Aðalstræti 75, 450 Patreksfirði.
Athugasemdir og ábendingar skulu vera skriflegar.
Virðingarfyllst,
Skipulagsfulltrúi Vesturbyggðar.