Hoppa yfir valmynd
Athugið að umsóknarfrestur er liðinn.

Patreks­skóli og Íþrótta­skólinn óska eftir starfs­manni

Vilt þú slást í hópinn?


Skrifað: 14. ágúst 2024

Starfsauglýsingar

Patreksskóli og Íþróttaskólinn leita að metnaðarfullum, sjálfstæðum og drífandi starfsmanni, annars vegar til stuðnings í kennslu og hins vegar til að halda utan um íþróttaskólann.

Menntunar og hæfniskröfur

  • Nám stuðningsfulltrúa eða sambærilegt nám æskilegt
  • Viðkomandi þarf að hafa náð 18 ára aldri
  • Hefur ánægju af að starfa með börnum
  • Frumkvæði í störfum og faglegur metnaður
  • Jákvæðni og sveiganleiki í samskiptum
  • Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð

Umsóknarfrestur er til og með 28. ágúst 2024

Laun og starfskjör eru í samræmi við kjarasamninga Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttafélags. Vesturbyggð áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.

Frekari upplýsingar veita Hafdís Helga Bjarnadóttir, tómstundafulltrúi, og Jónína Helga Sigurðardóttir Berg. Umsóknir skulu berast á netfangið joninas@vesturbyggd.is.