Hoppa yfir valmynd

Orku­setur Orku­stofn­unar auglýsir sólar­sellustyrki

Sótt er um styrk í gegnum þjón­ustugátt Orku­stofn­unar. Opið er fyrir umsóknir frá 27. júní til 1. ágúst.


Skrifað: 5. júlí 2024

Auglýsingar

Í forgangi við úthlutun styrkja eru:

  • Notendur utan samveitna
  • Notendur á dreifbýlistaxta
  • Notendur á rafhituðu svæði

Um samkeppnissjóð er að ræða, við val á umsóknum er horft til verkefna þar sem notkun og framleiðslugeta fara hvað best saman. Styrkurinn nemur aldrei meira en 50% af efniskostnaði.