Hoppa yfir valmynd

Menn­ing­ar­sjóður vest­firskrar æsku

Eins og undan­farin ár verða veittir styrkir úr Menn­ing­ar­sjóði vest­firskrar æsku til fram­halds­náms sem vest­firsk ungmenni geta ekki stundað í heima­byggð sinni.


Skrifað: 11. júlí 2024

Auglýsingar

Að öðru jöfnu njóta eftirtaldir forgangs um styrk úr sjóðnum:

  • Ungmenni sem misst hafa fyrirvinnu, föður eða móður.
  • Einstæðar mæður.
  • Konur, meðan fullt launajafnrétti er ekki í raun.
  • Ef engar umsóknir eru frá Vestfjörðum, koma umsóknir Vestfirðinga búsettum annars staðar til greina.

Félagssvæði Vestfirðingafélagsins er Ísafjarðarsýslur, Ísafjörður, Stranda- og Barðastrandasýslur.

Umsóknir skulu sendar fyrir lok júlí mánaðar 2024 til Menningarsjóðs vestfirskrar æsku c/o Heiða Jóna Hauksdóttir, Digranesheiði 34, 200 Kópavogur og skal umsögn fylgja frá skólastjóra og/eða öðrum sem þekkja viðkomandi nemanda, efni hans og aðstæður.

Einnig má senda umsóknir á netfangið: hjhauks@gmail.com.

Á síðasta ári voru veittir styrkir til tveggja ungmenna frá Vestfjörðum.

Í stjórn sjóðsins eru: Heiða Jóna Hauksdóttir, Sigurður H. Magnússon og Sigrún Edda Hauksdóttir.