Matvælaráðherra í heimsókn
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra mun heimsækja Patreksfjörð mánudaginn 2. september.
Skrifað: 28. ágúst 2024
Heimsóknin er gerð með það að markmiði að íbúar geti hitt ráðherra og átt milliliðalausar samræður um þau málefni sem heyra undir ráðherra. Hún verður til húsa í ráðhúsi Vesturbyggðar, Aðalstræti 75 á Patreksfirði.
Hægt er að bóka fund með því að senda póst á mar@mar.is eða bjarki.hjorleifsson@mar.is.