Lokun á hluta af Brunnum
Loka þarf tímabundið fyrir akstur gegnum götuna Brunna á Patreksfirði vegna framkvæmda.
Skrifað: 27. ágúst 2024
Verið er að fara í efnisskipti á öðrum hluta götunnar þannig að lokun á umferð um það svæði sem sjá má á mynd fyrir neðan er ekki umflúin.
Gatan verður lokuð á þessum kafla frá 28. ágúst til 11. september að báðum dögum meðtalið.
Gatan verður opnuð aftur fyrir umferð á þessum kafla að þessari framkvæmd lokinni en mun verða frekar gróf yfirferðar og krefst þess að aðilar sem fari um götuna sýni fyllstu varúð. Í framhaldinu verður farið í endurnýjun lagna í síðasta hluta götunnar og verða því þrengingar í gildi áfram um götuna, eftir að lokun lýkur.
Notendur eru beðnir um að sýna því skilning að ekki er um aðra leið að velja en að loka fyrir, meðan framkvæmdir standa yfir.