Lokað fyrir umferð á kirkjutorginu
Allur akstur um kirkjutorgið á Bíldudal verður bannaður fram á næsta sumar.
Skrifað: 18. september 2024
Þetta varðar öryggi nemenda Bíldudalsskóla þar sem svæðið er nýtt fyrir frímínútur og útikennslu. Svæðið (sjá mynd) hefur verið merkt með keilum, sjúkrabílaaðgengi verður þó áfram tryggt. Við þökkum skilninginn.