Listahátíð Samúels 2024
Listahátíð Samúels verður haldin að Brautarholti í Selárdal á vegum Félags um listasafn Samúels helgina 19.-21. júlí. Þann 17. júlí var Gerhard König, myndlistarmaður sem hefur unnið ötullega að endurreisn safnins, sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu fyrir störf í þágu varðveislu íslenskrar menningarsögu.
Skrifað: 18. júlí 2024
Aðgangur er 12.000 kr. og er innifalin súpa á föstudagskvöldinu og ljúffengur kvöldverður á laugardagskvöld. Miðasala fer fram á tix.is.
Dagskráin er á þessa leið:
Föstudagur
- 18:00 Athöfn í kirkjunni – Guðni Rúnar Agnarsson. Sýnd kvikmyndin Steyptir draumar eftir Kára G. Schram og Ólaf J. Engilbertsson
- 19:00 Súpa
- 20:00 Leiðsögn að Uppsölum – Elfar Logi Hannesson og Kári G. Schram.
Laugardagur
- 12:00 Boðið upp á gönguferðir með leiðsögn í Verdali og Vatnahvilft.
- 13:00 Flugdrekasmiðja fyrir fjölskyldur
- 15:00 Loji Höskuldsson og Þorvaldur Jónsson opna sýninguna Á leiðarenda í listasafninu.
- 16:00 Einar Már Guðmundsson – sögustund í kirkjunni. Á þessu ári eru 140 ár frá fæðingu Samúels og verða lesnar upp nokkrar sögur sem birtast í bókinni Steyptum draumum sem fjallar um líf og list Samúels. Sýnd verður kvikmyndin Steyptir draumar eftir Kára G. Schram og Ólaf J. Engilbertsson.
- 17:00 Leiðsögn um verk Samúels, bæði höggmyndir og málverk. Gerhard König segir frá viðgerðum á verkunum.
- 18:00 Kvöldverður í tjaldinu
- 20:00 Tónleikar í kirkjunni: Skúli mennski, Krummi Björgvins, Kraftgalli með dj-sett.
- 22:00 Brekkusöngur við ströndina