Hoppa yfir valmynd
Athugið að umsóknarfrestur er liðinn.

Leik­skóla­kennari á Araklett

Við leitum að leik­skóla­kennara eða öðrum með sambæri­lega menntun sem nýtist í starfi til að gegna 100% stöðu leik­skóla­kennara á leik­skól­anum Arakletti á Patreks­firði.


Skrifað: 14. maí 2024

Starfsauglýsingar

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Að vinna að uppeldi og menntun barnanna
  • Taka þátt í skipulagningu faglegs starfs leikskólans, þar með talið innleiðingu námsvísa, undir stjórn leikskólastjóra og/eða deildarstjóra
  • Taka þátt í ýmisri áætlanagerð og mati á starfi leikskólans, svo sem gerð starfsáætlunar og innra mati, undir stjórn leikskólastjóra
  • Vinna í nánu samstarfi við foreldra/forráðamenn barnanna
  • Önnur verkefni er varða uppeldi og menntun barnanna
  • Og auðvitað að vinna samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla og skólastefnu Vesturbyggðar

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Leyfi til að nota starfsheitið kennari
  • Gjarnan sérhæfð hæfni á leikskólastigi
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Góðir samvinnu- og samskiptahæfileikar
  • Góð íslenskukunnátta

Umsóknarfrestur er til og með 20. maí 2024

Laun eru samkvæmt kjarasamningum Sambands Íslenskra Sveitarfélag og viðkomandi stéttarfélags.

Vakin er athygli á því að ef við náum ekki að ráða kennara kemur til greina að ráða annað háskólamenntað fólk eða leiðbeinendur. Allir einstaklingar, óháð kyni og búsetu eru hvattir til að sækja um starfið með því að senda tölvupóst á leikskólastjóra ára araklettur@vesturbyggd.is. Umsókn fylgi, leyfisbréf, ferlisskrá og rökstuðningur fyrir hæfni í starfi.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Bergdís Þrastardóttir, leikskólastjóri.

Leikskólinn Araklettur er í rífandi uppbyggingu og leitum við að drífandi, víðsýnum og lausnarmiðuðum leikskólakennara til að vinna að þessari uppbyggingu með okkur. Á Arakletti er pláss fyrir allt að 60 börn, 15 á yngstu deild og allt að 45 á aldursblandaðri eldri deild þar sem við vinnum mikið með flæði og frjálsan leik. Eftir miklar breytingar á húsnæði og starfi leikskólans undanfarið ár erum við búin að innleiða breytingar sem uppfylla kröfur nýrrar aðalnámsskrár og erum stolt af því að geta boðið uppá húsnæði sem uppfyllir gæðaviðmið um leikskólastarf, bæði fyrir börn og starfsfólk. Í starfinu leggjum við áherslu á að gera fáa hluti og gera þá vel og munum skólaárið 2024-2025 leggja áherslu á að efla málþroska og félagsþroska barnanna og efla teymisvinnu og skipulag starfsfólksins. Sem lið í þessu munum við m.a. innleiða námsvísa og lotur og yrðir þú mikilvægur hluti af þeirri vinnu ásamt annari uppbyggingu sem framundan er

Araklettur leikskólastjóri

Bergdís Þrastardóttir araklettur@vesturbyggd.is / 450 2342