Lausar stöður við Tálknafjarðarskóla
Tálknafjarðarskóli leitar að metnaðarfullum, sjálfstæðum og drífandi starfsmönnum með mikla þekkingu og áhuga á skólastarfi.
Skrifað: 23. maí 2024
Í Tálknafjarðarskóla eru lausar til umsóknar eftirfarandi stöður:
Leikskólastig
Ein staða deildarstjóra leikskóla (100% starfshlutfall)
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Kennaramenntun og réttindi til kennslu í leikskóla
- Reynsla af kennslu á leikskólastigi
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði
- Færni í að vinna í teymum og að fjölbreyttum verkefnum
- Faglegur metnaður og ánægja af starfi með börnum
- Frumkvæði og skipulögð vinnubrögð
- Jákvæðni gagnvart skólaþróun
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum
Leik- og grunnskólastig
Íþróttakennari (50% starfshlutfall, með möguleika á hærra hlutfalli með annarri kennslu)
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Kennaramenntun og réttindi til kennslu í grunnskóla
- Reynsla af kennslu í skólaíþróttum á grunnskólastigi
- Færni í að vinna í teymi og að fjölbreyttum verkefnum
- Faglegur metnaður og ánægja af starfi með börnum
- Frumkvæði og skipulögð vinnubrögð
- Jákvæðni gagnvart skólaþróun
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum
Grunnskólastig
Tvær stöður umsjónarkennara á mið- og elsta stigi grunnskóla (100% starfshlutfall)
Stundakennari í stærðfræði/raungreinum
Stundakennari í list- og verkgreinum
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Kennaramenntun og réttindi til kennslu í grunnskóla
- Reynsla af kennslu á grunnskólastigi
- Færni í að vinna í teymi og að fjölbreyttum verkefnum
- Faglegur metnaður og ánægja af starfi með börnum
- Frumkvæði og skipulögð vinnubrögð
- Jákvæðni gagnvart skólaþróun
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum
Umsóknarfrestur er til og með 12. júlí 2024
Umsækjendur mega hvorki hafa hlotið refsidóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga (kynferðisbrot), nr. 19/1940 frá því að hann var sakhæfur (15 ára) né hafa hlotið refsidóm fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, á síðastliðnum fimm árum. Rétt er að vekja athygli á því að við ráðningu er heimilt að sækja upplýsingar úr sakaskrá.
Umsókn um starf skal fylgja skrá yfir menntun og starfsferil og afrit af leyfisbréfi ef við á, kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar með rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið og upplýsingar um umsagnaraðila.
Umsókn sendist á vesturbyggd@vesturbyggd.is. Öllum umsóknum verður svarað. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Vesturbyggð áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.
Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um. Fáist ekki menntaður kennara í stöðu sem auglýst er, er heimilt að ráða annan í stöðuna og ræður hæfni umsækjanda þar um. Önnur uppeldismenntun og/eða reynsla er þá metin. Ráðið verður í stöðurnar frá 1. ágúst 2024.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Arnheiður Jónsdóttir, sviðsstjóri fjölskyldusviðs.