Hoppa yfir valmynd

Kynn­ing­ar­fundur Gott að eldast

Fimmtu­daginn 5. sept­ember kl. 14:00-17:00 verður haldinn kynn­ing­ar­fundur á verk­efninu Gott að eldast í fund­arsal félags­heim­ilis Patreks­fjarðar.


Skrifað: 30. ágúst 2024

Á fundinum verður samningur Vesturbyggðar og Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða um samþætta heimaþjónustu á sunnanverðum Vestfjörðum kynntur, tómstundafulltrúi Vesturbyggðar segir frá styrkúthlutun frá EBÍ sem sveitarfélagið hlaut fyrir heilsueflingu eldri borgara á svæðinu og að lokum munu Líney Úlfarsdóttir sálfræðingur og Svavar Knútur tónlistarmaður flytja erindið Vitundarvakning um heilbrigða öldrun: áhrif félagslegrar einangrunar á lífsgæði.

Í lok fundar er boðið upp á kaffi og kynningu á pokavarpi og Boccia. Öll eru hjartanlega velkomin.

Hvað er Gott að eldast?

Aldurssamsetning þjóðarinnar breytist nú hratt. Eldra fólk lifir lengur en áður og er virkara og hraustara en nokkru sinni fyrr. Þjónusta við eldra fólk þarf að þróast í takt við þetta og sú vegferð er nú hafin með þessu verkefni. Stjórnvöld taka þar utan um málefni eldra fólks með nýjum hætti. Grunnhugsunin er sú að eldra fólk er ekki byrði á samfélaginu heldur hefur það ótvírætt virði.

Verkefnið Gott að eldast er á ábyrgð félags- og vinnumarkaðsráðuneytis og heilbrigðisráðuneytis og er unnið í samvinnu við Samband íslenskra sveitarfélaga og Landssamband eldri borgara, auk fjölda annarra hagaðila. Sex heilbrigðisstofnanir og 22 sveitarfélög, þar á meðal Vesturbyggð, taka þátt í þróunarverkefnum sem ganga út á að samþætta félags- og heilbrigðisþjónustu fyrir eldra fólk í heimahúsum.

Meginþungi aðgerða liggur í þróunarverkefnum sem ganga út á að finna góðar lausnir sem samþætta félags- og heilbrigðisþjónustu fyrir eldra fólk og flétta saman þá þætti sem ríkið sér annars vegar um og hins vegar sveitarfélögin. Sömuleiðis verður ráðist í aðgerðir sem hverfast um heilbrigða öldrun með alhliða heilsueflingu, sveigjanlega þjónustu og stórbættan aðgang að ráðgjöf og upplýsingum
um þjónustu fyrir eldra fólk. Allar aðgerðir miða að því að tryggja virkara og heilsuhraustara eldra fólki þjónustu sem stuðlar að því að sem
flest þeirra séu þátttakendur í samfélaginu – sem allra lengst.