Kosning um orð ársins í Vesturbyggð 2023
Kosning er hafin um orð ársins 2023 í Vesturbyggð.
Skrifað: 21. desember 2023
Íbúum gafst áður tækifæri til að senda inn tillögur. Valið var úr þeim tillögum sem bárust og er nú opið fyrir kosningu á milli þeirra. Orðin eru framkvæmdir, framtíð, laxalús, sameining og samgöngur.
Hér fyrir neðan er hlekkur á kosninguna. Hægt er að kjósa til miðnættis kvöldsins 28. desember, úrslitin verða kunngjörð daginn eftir á heimasíðu Vesturbyggðar. Kosningin er nafnlaus.
Menningar- og ferðamálafulltrúi
VMÞ
Valgerður María Þorsteinsdóttir muggsstofa@vesturbyggd.is / 450 2335