Kall eftir þátttöku í tómstundadeginum
Tómstundadagurinn 2024 verður haldinn laugardaginn 21. september kl. 14-16 í íþróttamiðstöð Tálknafjarðar. Kallað er eftir þátttöku félaga, klúbba og annarra sem hafa áhuga á að kynna starfsemi sína.
Skrifað: 13. ágúst 2024
Markmiðið með tómstundadeginum er að gefa félögum tækifæri á að koma sínu frábæra starfi á framfæri og fyrir íbúa, nýja sem gamla, að kynnast því sem er í boði.
Gott væri ef þau félög sem vilja taka þátt láti tómstundafulltrúa vita fyrir 17. september, og taki þá fram hvort þau þurfi að komast í rafmagn og/eða þurfi fleiri en eitt borð undir básinn. Tómstundafulltrúi veitir jafnframt nánari upplýsingar.
Menningar- og ferðamálafulltrúi
VMÞ
Valgerður María Þorsteinsdóttir muggsstofa@vesturbyggd.is / 450 2335