Íþróttaskólinn á Patreksfirði
Íþróttaskólann á Patreksfirði mun hefjast að nýju miðvikudaginn 4. september.
Skrifað: 2. september 2024
Íþróttaskólinn er fyrir börn í 1.-4. bekk. Hann sækir fyrirmynd sína til HSV en þar hefur íþróttaskóli verið starfræktur frá hausti 2011. Kennsla í skólanum skiptist í tvennt, annars vegar grunnþjálfunarþátt og hins vegar boltaskóla sem kenndur er í lotum, þ.e. ein grein í einu. Boltaíþróttir sem aðildafélög HHF hafa í boði eru í hávegum hafðar auk þess sem að aðrar greinar eru kynntar fyrir börnunum, sem eru ekki í boði á svæðinu.
Markmið skólans eru eftirfarandi:
- Auka fjölda barna sem iðka íþróttir
- Að fyrstu kynni barna af íþróttaiðkun séu jákvæð
- Að börn fái að njóta eins mikillar fjölbreytni og kostur er
- Auka gæði þjálfunar og auka samræmingu þjálfunar á svæðinu
- Lækka kostnað heimila við íþróttaiðkun barna
- Auka grunnþjálfunarhluta æfinga sem tengjast almennum hreyfiþroska
- Að börn læri frá upphafi skólagöngu að hreyfing sé hluti af daglegu lífi