Íbúðir lausar til leigu á Bíldudal
Brák íbúðafélag hses. auglýsir eftir umsóknum um leigu á íbúðum við Hafnarbraut 9, Bíldudal.
Skrifað: 2. september 2024
Um er að ræða tvær 2ja herbergja, 51,8m² íbúðir og tvær 3ja herbergja, 76,7m² íbúðir.
Markmið Brákar íbúðafélags hses. er að bæta húsnæðisöryggi tekju- og eignaminni fjölskyldna og einstaklinga.
Um útleigu íbúðanna gilda lög um almennar íbúðir nr. 52/2016, í lögunum/reglugerð eru tilgreind tekju- og eignamörk ásamt viðmiði um greiðslubyrði leigu.
Umsókn um leigu
Fylla skal út umsóknareyðublað og senda á netfangið brakibudafelag@brakibudafelag.is ásamt afriti af síðasta skattframtali og afriti af þremur síðustu launaseðlum umsækjenda.
Umsóknarfrestur er til og með 10. september 2024.
Brák íbúðafélag hses. úthlutar íbúðinni þegar farið hefur verið yfir allar umsóknir.