Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir meira en 3 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.

Hjallar 24, grennd­arkynning

Á 82. fundi skipu­lags- og umhverf­is­ráðs Vest­ur­byggðar 11. mars sl., var samþykkt að grennd­arkynna bygg­ingaráform í samræmi við 44. gr. skipu­lagslaga nr. 123/2010. Óskað er eftir að fá að reisa 241,6 m2 einbýl­ishús við Hjalla 24 Patreks­firði. Svæðið er skil­greint sem íbúð­ar­svæði skv. gild­andi aðal­skipu­lagi Vest­ur­byggðar.


Skrifað: 18. mars 2021

Skipulög í auglýsingu

Meðfylgjandi eru kynningargögn þar sem sjá má áformin á afstöðumynd  og útlitsteikningum. Uppdrættir eru einnig til sýnis í Ráðhúsi Vesturbyggðar að Aðalstræti 75.

Að lokinni kynningu er umsækjanda heimilt að senda inn byggingarteikningar og fær byggingarleyfi standist gögn reglugerð. Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við áformin. Frestur til að senda athugasemdir er frá 18. mars til og með 15. apríl 2021.

Skila skal athugasemdum á bæjarskrifstofur Vesturbyggðar, Aðalstræti 75, eða rafrænt á vesturbyggd@vesturbyggd.is  merkt „Hjallar 24“ .

Ef frekari upplýsinga er óskað má hafa samband við Elfar Stein Karlsson, byggingarfulltrúa Vesturbyggðar á netfangið elfar@vesturbyggd.is eða í síma 849 7909.

Heimilt er að stytta tímabil grenndarkynningar hljótist undirritað samþykki íbúa fyrir áformunum, skv. 3. mgr., 44. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010.

Kynningarbréf fá eigendur fasteignanna að Hjöllum 19, 20, 21, 23, 25, 26 og Brunnum 19, 21, 23 og 25.

Virðingarfyllst

Skipulagsfulltrúi Vesturbyggðar

Skipulagsfulltrúi

Óskar Örn Gunnarsson
oskar@landmotun.is / 575 5300