Grenndarkynning - Urðargata 21
Breyting á deiliskipulagi ofanflóðvarnargarða ofan Urða og Mýra og byggðar neðan þeirra, grenndarkynning
Skrifað: 18. janúar 2024
Á 391. fundi bæjarstjórnar Vesturbyggðar þann 17. janúar 2023, var samþykkt að grenndarkynna breytingu á deiliskipulagi ofanflóðvarnargarða ofan Urða og Mýra og byggðar neðan þeirra í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Tillagan felur í sér að sameiningu lóða Urðargötu 21 a og b í eina lóð og sameiningu byggingareita. Lóð verður eftir sameiningu 1272 m2. Um er að ræða óverulega breytingu á deiliskipulaginu. Áform eru upp að reisa 180 m2 einbýlishús og nýttur verður vatnstankur sem stendur á lóðinni fyrir kjallara.
Uppdrættir eru einnig til sýnis á bæjarskrifstofum Vesturbyggðar að Aðalstræti 75.
Frestur til að senda athugasemdir er til 15. febrúar 2024.
Skila skal athugasemdum á bæjarskrifstofur Vesturbyggðar, Aðalstræti 75, eða rafrænt á vesturbyggd@vesturbyggd.is merkt „Urðargata 21 a og b“ .
Heimilt er að stytta tímabil grenndarkynningar hljótist undirritað samþykki íbúa fyrir áformunum, skv. 3. mgr., 44. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010.
Grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum Urðargötu 19, 20, 22, 23 og 26.
Virðingarfyllst
Skipulagsfulltrúi Vesturbyggðar