Hoppa yfir valmynd
Athugið að þessi færsla var skrifuð fyrir meira en 2 ári síðan, og því gæti innihald hennar ekki átt við lengur.

Grennd­arkynning - Dalbraut 1

Bæjar­stjórn Vest­ur­byggðar hefur ákveðið að láta fara fram grenndar­kynn­ingu í samræmi við 44. gr. skipu­lagslaga nr. 123/2010, vegna bygg­ingaráforma við Dalbraut 1 á Bíldudal.


Skrifað: 10. maí 2022

Skipulög í auglýsingu

Frestur til að skila athugasemdum og ábendingum er 4 vikur, til og með 10. júní 2022.

Litið verður svo á að þeir sem ekki gera athugasemdir séu samþykkir fyrirhuguðum áformum. Byggingaráformin skal grenndarkynna fyrir Tjarnarbraut 2, Dalbraut 4 og 7, Hafnarbraut 6 og 8 og Smiðjustíg 1.

Nánari upplýsingar eru veittar í Ráðhúsi Vesturbyggðar, Aðalstræti 75, Patreksfirði eða í síma 450 2300 á opnunartíma skrifstofunnar, virka daga kl. 10 – 12:30 og 13 – 15. Fyrirspurnir má einnig senda á netfangið vesturbyggd@vesturbyggd.is.