Eyrargata 5 grenndarkynning
Á 99. fundi Skipulags- og umhverfisráðs þann 17. október 2022 var samþykkt að grenndarkynna erindi um deiliskipulagsbreytingu hafnarsvæðis á Patreksfirði sem nær yfir lóð Eyrargötu 5 á Patreksfirði.
Skrifað: 9. janúar 2023
Breytingin fjallar um að byggingarreitur við Eyrargötu 5 verði stækkaður um 10 m til suðausturs til þess að rúma auknar byggingarheimildir innan lóðar.
Skipulags- og umhverfisráð Vesturbyggðar grenndarkynnir hér með erindið fyrir eigendum fasteigna í nágrenni í samræmi við samþykkt þessa og með vísan til 43. og 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Meðfylgjandi tillaga um deiliskipulagsbreytingu, er kynnt á heimasíðu Vesturbyggðar og er til sýnis á bæjarskrifstofu Vesturbyggðar, Aðalstræti 75.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við breytinguna.
Athugasemdum skal skila skriflega á netfangið vesturbyggd@vesturbyggd.is, eigi síðar en 28. desember 2022.
Athugasemdafrestur framlengdur til og með 23. janúar 2023.